Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 98

1 Syngið nýjan söng fyrir Drottin því hann hefur unnið dásamlegt verk! Hann er sigursæll í mætti sínum og heilagleika.

2 Hann hefur tilkynnt sigur sinn birt þjóðunum réttlæti sitt. 3 Hann hefur miskunnað lýð sínum, haldið loforð sín til Ísrael. Allur heimurinn er Guð bjargaði þjóð sinni. 4 Þess vegna hefja löndin fagnaðarsöng, syngja og lofa hann af öllu hjarta.

5 Syngið Drottni við undirleik hörpu. 6 Blásið í lúðra og básúnur gjalli! Hljómsveitin spili lofgjörðarlag. Hyllið Drottin, konunginn! 7 Hafið drynji og lofi Drottin! Jörðin og íbúar hennar reki upp fagnaðaróp!

8,9 Fossarnir klappi lof í lófa og klettarnir syngi gleðisöng, því Drottinn mun dæma heiminn í réttlæti sínu og af réttvísi.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também