Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 129

1 Allt frá bernsku var ég ofsóttur (það er Ísrael sem talar) 2 og misréttinu linnti ekki – en aldrei var ég þurrkaður út. Aldrei hefur óvinum mínum tekist að uppræta mig!

3,4 Þótt þeir húðstrýktu mig og tættu bak mitt, þá segi ég samt: „Drottinn er góður!" Því að hann braut hlekkina sem illmennin höfðu fjötrað mig með.

5 Þeir sem hata Jerúsalem skulu verða til skammar og flýja. 6,7 Þeir skulu vera eins og gras á þaki – það skrælnar áður en það hefur vaxið og myndað fræ. Sláttumaðurinn mun grípa í tómt og sá sem bindur fær ekki neitt. 8 Þeir sem framhjá fara skulu ekki óska þér blessunar. En við ykkur segjum við: „Drottinn blessi þig!"

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.