Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 87

1,2 Hátt á hinu heilaga fjalli, stendur Jerúsalem, borg Guðs borgin sem hann elskar öllum borgum framar.

3 Vel er um þig talað, þú borg Guðs! 4 Ef ég í vinahópi minnist á Egyptaland eða Babýlon, Filisteu eða Týrus eða hið fjarlæga Bláland, þá hrósa þeir sér sem fæddir eru á þessum stöðum. 5 En mestur heiður fylgir Jerúsalem! Hún er móðirin og gott er vera fæddur þar! Hann, hinn hæsti Guð, mun sjálfur vernda hana.

6 Þegar Drottinn lítur yfir þjóðskrárnar, mun hann merkja við þá sem hér eru fæddir!

7 Á hátíðum og tyllidögum munu menn syngja: Jerúsalem, uppsprettur lífs míns eru í þér!"

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também