Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 60

1 Þennan sálm orti Davíð 2 þegar hann átti í ófriði við Sýrlendinga og óvíst var um úrslit. Þetta gerðist á sama tíma og Jóab, hershöfðingi Ísraels, vann sigur á 12.000 Edomítum í Saltdalnum.

3 Þú Guð, hefur útskúfað okkur og brotið niður varnirnar. Þú hefur reiðst okkur og tvístrað. Drottinn sýndu aftur miskunn þína. 4 Þú lést landið skjálfa, sprungur opnuðust. Drottinn læknaðu það og græddu sárin. 5 Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, við reikuðum eins og drukknir menn.

6 En hefur þú reist okkur herfána! Þangað stefnum við allir sem elskum þig. 7 Réttu út þína sterku hönd og frelsaðu okkur! Bjargaðu ástvinum þínum. 8,9 Guð hefur heitið hjálp. Hann hefur svarið það við heilagleika sinn! Er undra þótt ég glaður?! Síkem, Súkkót, Gíleað, Manasse allt er þetta mitt," segir hann. Júda gefur konung og Efraím varðmenn. 10 Móab er þjónn minn og Edóm þræll. Og yfir Filisteu æpi ég siguróp!"

11 Hver fer með til Edóms, inn í víggirtar borgir hans? 12 Guð! Hann sem áður útskúfaði og yfirgaf hersveitir okkar!

13 Drottinn, styð okkur gegn óvinunum, því ekki hjálpa menn.

14 Með Guðs hjálp vinnum við stórvirki, hann mun fótum troða óvinina.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também