Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 64

1-3 Ó, Drottinn, hlustaðu á neyðaróp mitt, því hópur af þorpurum og bófum hafa gert samsæri gegn mér. Verndaðu mig! 4 Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt. 5,6 Þeir senda mér kaldar kveðjur úr launsátri, vinna verk sín í skyndi, eru hvergi smeykir. Þeir sitja á svikráðum. Hittast á laun og leggja gildrur fyrir aðra. Þetta sér enginn," segja þeir. 7 Þeir upphugsa ill verk og segja er allt klappað og klárt!" Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.

8 En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi veifað hittir örin þá 9 Tunga þeirra verður þeim falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og 10 ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur því sem hann gerir. 11 En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também