Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 102

1,2 Drottinn, heyrðu bæn mína! Hlustaðu á ákall mitt! 3 Snúðu ekki baki við mér á ógæfutímum. Hneigðu eyra þitt mér og svaraðu mér fljótt. 4,5 Ævi mín líður svo hratt, dagarnir fljúga hver af öðrum. Heilsan er búin, hjartað er sjúkt ég er eins og visið strá. Maturinn er bragðlaus, ég er hættur finna bragð. 6 Ég er ekkert nema skinn og bein. 7 Ég er líkastur pelikan í eyðimörk eða uglu í húsarúst. 8 Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.

9 Óvinir mínir hæða mig og spotta dag eftir dag. 10,11 Fæða mín er aska, ekki brauð, og drykkur minn blandast tárum mínum. Þú ert mér reiður Drottinn og hefur varpað mér burt frá þér.

12 Líf mitt líður burt eins og kvöldskuggi. Ég visna eins og gras 13 en þú Drottinn ríkir í dýrð þinni eilífu. Þinn orðstír mun lifa frá kynslóð til kynslóðar.

14 Ég veit þú munt koma og vægja Jerúsalem. Gerðu það núna! Efndu loforð þitt um hjálp. 15 Því þjóð þín elskar hvern stein í múr hennar og jafnvel rykið á strætum hennar.

16 Þjóðirnar og konungar þeirra skjálfi fyrir Drottni og hans miklu dýrð, 17 því Drottinn mun endurreisa Jerúsalem og birtast þar í dýrð! 18 Hann hlustar á bænir fátæklinganna, gefur gaum beiðni þeirra.

19 Þetta hef ég skráð til þess komandi kynslóðir lofi Drottin fyrir öll hans verk. Fólk sem enn hefur ekki séð dagsins ljós mun vegsama hann. 20 Segið þeim Drottinn leit niður frá musteri sínu á himnum. 21 Hann heyrði stunur þjóðar sinnar í ánauðinni hún var dauðans matur og hann frelsaði hana!

22,23 Þess vegna streyma þúsundir til musteris hans í Jerúsalem og lofa hann og vegsama um alla borgina. Konungar jarðarinnar eru í þeim hópi.

24 Hann hefur tekið frá mér lífskraftinn og stytt ævi mína.

25 En ég hrópaði til hans: Þú, Guð sem lifir eilífu, láttu mig ekki deyja fyrir aldur fram! 26 Í upphafi lagðir þú undirstöður jarðarinnar og himnarnir eru verk handa þinna. 27 Þau munu hverfa en þú ert eilífu. Þau fyrnast, líkt og slitin föt sem lögð eru til hliðar. 28 En þú ert hinn sami og ár þín taka aldrei enda.

29 En afkomendur okkar munu lifa og þú munt varðveita þá, kynslóð fram af kynslóð."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também