Publicidade

Salmos 12

1,2 Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta? 3 Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind.

4,5 En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti. Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!" 6 Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra." 7 Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull. 8 Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna, þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-15_21-32-39-