Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 6

1,2 Æ, Drottinn! Ekki refsa mér í reiði þinni! 3 Miskunnaðu mér því ég örmagnast. Lækna mig, því líkami minn er sjúkur. 4 Ég er hræddur, veit ekki mitt rjúkandi ráð. Ó, Drottinn, reistu mig á fætur, og það fljótt!

5 Komdu Drottinn og læknaðu mig. Bjargaðu mér í kærleika þínum. 6 Því ef ég dey, þá get ég ekki lengur lofað þig meðal vina minna. 7 Ég er aðframkominn af kvöl. Hverja nótt væti ég koddann með tárum. 8 Augu mín daprast af hryggð vegna illráða óvina minna.

9 Farið! Látið mig í friði, þið illmenni, því Drottinn hefur séð tár mín 10 og heyrt grátbeiðni mína. Hann mun svara öllum mínum bænum. 11 Óvinir mínir munu verða til skammar og skelfingin mun steypast yfir þá. Guð mun reka þá sneypta burtu.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também