Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 140

1,2 Ó, Drottinn, frelsaðu mig frá vondum mönnum. Verndaðu mig gegn ofbeldismönnunum 3 sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið. 4 Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit. 5 Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum. 6 Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.

7,8 Ó, Drottinn, þú ert minn Guð! Hlustaðu á grátbeiðni mína! Láttu ekki svikráð níðinganna heppnast. 9 Láttu þá ekki árangri eða hreykja sér hátt. 10 Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll! 11 Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.

12 Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi. 13 Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu. 14 Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir lifa í nálægð þinni.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também