Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 83

1,2 Guð, vertu ekki þögull og afskiptalaus þegar við biðjum til þín. Svaraðu okkur! , bjargaðu okkur!

3 Heyrirðu ekki skarkalann og ysinn í hópi óvina þinna? Sérðu ekki hvað þeir aðhafast, þessir hatursmenn þínir? 4 Þeir eru með ráðagerðir um tortíma þeim sem þú elskar! 5 Komum!" segja þeir, þurrkum út Ísrael, svo þeir hætti vera til og gleymist." 6 Þetta var samþykkt af leiðtogum þeirra. Þessir undirrituðu sáttmála um fylkja liði gegn almáttugum Guði: 7 Ísmaelítar, Edomítar, Móabítar og Hagrítar. 8 Einnig Gebalmenn, Ammon, Amalek, Filistear og Týrusbúar. 9 Assýría hefur líka slegist í hópinn og gjört bandalag við afkomendur Lots.

10 Farðu með þá eins og Midíansmenn forðum, eins og þú fórst með Sísera og Jabín við Kíshonlæk 11 og með óvini þína við Endór, en lík þeirra urðu áburði á jörðina. 12 Láttu höfðingja þeirra falla eins og Óreb og Seeb, foringja þeirra deyja líkt og Seba og Salmúna 13 sem sögðu: Leggjum undir okkur haglendi Drottins!"

14 Þú, Guð minn, feyktu þeim burt eins og ryki, eins og hismi fyrir vindi 15 eins og skógi sem brennur til ösku. 16 Flæmdu þá burt í óveðri, skelfdu þá með fellibyl þínum. 17 Drottinn, láttu þá kenna á andúð þinni uns þeir viðurkenna mátt þinn og vald. 18 Láttu öll þeirra verk mistakast, svo þeir skelfist og blygðist sín 19 og viðurkenni þú einn, Drottinn, ert Guð yfir öllum guðum og jörðin öll er á þínu valdi.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também