Autocontrole
O autocontrole é fruto do Espírito e virtude indispensável. A graça de Deus nos ensina a renunciar à impiedade e a viver com sobriedade, domínio próprio e piedade no mundo presente.
Fruto e virtude
O domínio próprio é fruto do Espírito. Acrescentai ao conhecimento o autocontrole. A disciplina interior produz maturidade.
Ef hins vegar heilagur andi stjórnar lífi okkar, þá skapar hann eftirfarandi ávexti í okkur: Kærleika, gleði, frið, þolinmæði, gæsku, góðvild, trúmennsku, hógværð, sjálfsstjórn og bindindi, – ekkert af þessu er í andstöðu við lög Gyðinga.
En trúin ein nægir ekki til að fá þessar gjafir. Þið verðið einnig að kappkosta að lifa heiðvirðu lífi og það dugir jafnvel ekki til, því auk þess verðum við að læra að þekkja Guð betur og fá skilning á því sem hann vill að við gerum. Því næst þurfið þið að læra að neita ykkur um ýmislegt, til þess að þið verðið þolinmóð og guðrækin og leyfið Guði fúslega að framkvæma vilja sinn í lífi ykkar. Þegar þessu marki er náð, getið þið tekið næsta skref og það er að láta ykkur þykja vænt um annað fólk og gleðjast yfir því, en þá munuð þið að lokum elska það af öllu hjarta.
Því að fyrirgefning Guðs og hjálpræði hans stendur öllum til boða, og það ókeypis. Þetta sýnir að Guð vill að við snúum okkur frá guðleysi og syndsamlegum nautnum, til góðs og guðrækilegs lífernis,
Heilagur andi sem Guð gaf þér, vill ekki að við óttumst mennina, heldur vöxum í kærleika og krafti Guðs og gætum stillingar.
Ég leik sjálfan mig hart eins og íþróttamaður. Ég aga mig og þjálfa til þess að ég, sem hef lagt öðrum lífsreglurnar, verði ekki sjálfur dæmdur úr leik!
Til að vinna keppni verður þú að neita þér um ýmislegt, sem hindrað gæti árangur þinn. Íþróttamaður leggur hart að sér, til þess eins að vinna fánýtan verðlaunagrip, en við til að vinna himnesk laun, sem vara að eilífu.
En munið þetta: Þær girndir sem þið þurfið að takast á við í lífi ykkar, eru ekkert nýtt eða einstakt. Margir hafa áður orðið að kljást við sömu vandamál og þið. En engin freisting er óyfirstíganleg. Þið getið treyst því að Guð muni ekki leyfa freistingunni að sigra ykkur. Þessu hefur hann lofað og hann stendur við orð sín. Hann mun sýna ykkur leið til að komast undan freistingunni, til þess að þið getið staðist hana ef þið viljið.
Dominar a si mesmo
Melhor é quem domina o seu espírito do que quem toma uma cidade. A cidade sem muros é quem não tem autocontrole.
Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna.
Kæru vinir, hér er góð regla: Hlustið og takið vel eftir öllu, segið fátt og reiðist ekki.
Barátta okkar er alls ekki gegn holdiklæddu fólki, heldur gegn ósýnilegum öflum eyðingar og upplausnar, hinum máttugu og illu myrkraöflum sem ríkja í þessum fallna heimi. Barátta okkar er einnig við mikinn fjölda illra anda í andaheiminum.
Verið því allsgáð og sofið ekki á verðinum eins og sumir. Vakið og væntið komu Drottins!
Gætið þess að verða ekki eins og þeir, því að þá glatið þið því, sem þið hafið þegar öðlast í samfélaginu við Guð. Látið ekkert koma í veg fyrir að þið fáið full laun frá Drottni.