Confiar no Senhor
Confiar no Senhor é a base de toda vida espiritual. A confiança em Deus nos livra do medo, nos dá paz e nos posiciona para receber as promessas divinas.
Confiar de todo coração
Confia no Senhor de todo o coração. Não te apoies em teu próprio entendimento — em todos os caminhos o reconheça.
Sæll er sá sem nýtur verndar hins hæsta og hvílir í skjóli hins almáttuga, sá sem getur sagt við Drottin: „Þú ert skjól mitt og vörn! Þú ert minn Guð, ég treysti þér!"
Hann frelsar þig úr snörunni og bjargar þér undan plágunni. Hann mun skýla þér undir vængjum sínum. Þar muntu finna öruggt skjól! Hann hefur lofað að vernda þig og frelsa.
Þeir sem treysta Drottni eru eins og Síonfjall, þeir haggast ekki.
Fjöllin umhverfis Jerúsalem eru henni til verndar, eins er Drottinn, hann umlykur og verndar sitt fólk.
Hann óttast ekki vondar fréttir, né kvíðir því sem koma skal. Hann er öruggur og veit að Drottinn annast hann.
Treystu heldur Drottni, vertu góðgjarn og sýndu kærleika. Þá muntu búa öruggur í landinu og farnast vel.
Þú skalt gleðjast í Drottni – og hann mun veita þér það sem hjarta þitt þráir. Fel Drottni framtíð þína, áform þín og verk, og treystu honum. Hann mun vel fyrir öllu sjá. Heiðarleiki þinn og hreinskilni verða öllum augljós, og Drottinn mun láta þig ná rétti þínum.
Allir kúgaðir komi til hans. Hann er skjól þeirra og athvarf á neyðarstundu.
Segurança em Deus
Bem-aventurado o homem que confia no Senhor. Ele é como árvore plantada junto às águas — não temerá quando vier o calor.
Því að Drottinn er okkur ljós og skjöldur. Vegsemd og náð veitir hann. Hann neitar þeim ekki um nein gæði sem hlýða honum.
Guð blessi konunginn! – Já, það mun hann vissulega gera! í himinhæðum heyrir hann bæn mína og veitir mér mikinn sigur.
Hinir stæra sig af herstyrk og vopnavaldi, en við af Drottni, Guði.
Betra er að treysta Drottni, en að reiða sig á menn. Öruggara er að leita hjálpar hans en stuðnings frá voldugum konungi!
Não confiar no homem
Não temas — em ti confiarei. Melhor é confiar no Senhor do que confiar no homem ou nos príncipes.
Þegar ég hrópa til þín um hjálp, breytist bardaginn. Óvinir mínir flýja! Þá veit ég að Guð er með mér! Hann liðsinnir mér! Með hjálp Guðs mun ég lofa orð hans, já vissulega mun ég lofa orð hans.
Þaggaðu niður í óvinum mínum sem segja: „Við höfum sigrað hann!" Láttu þá ekki hlakka yfir því að ógæfa hendi mig.
Ég frétti hvað um mig var sagt – um baktal óvina minna. Ógn og skelfing var hvert sem ég leit, svik og prettir í öllum hornum!
Þá fylltist munnur minn lofsöng – lofgjörð um Guð. Margir hlustuðu er ég söng um velgjörðir hans við mig. Þeir munu einnig lúta honum og lofa hann, setja traust sitt á hann.
„Látið ekki óttann ná tökum á ykkur. Treystið Guði og treystið mér.