Pular para o conteúdo
Publicidade

Salmos 84

1,2 Ó, hve musteri þitt er yndislegt, þú Drottinn hersveitanna. 3 Mig langar svo mjög, ég þrái, nálgast þig, hinn lifandi Guð. 4 Jafnvel spörvum og svölum leyfist búa sér hreiður innan um ölturu þín og eiga þar unga sína. Þú Drottinn hinna himnesku hersveita, konungur minn og Guð minn! 5 Sælir eru þeir sem búa í musteri þínu og syngja þér lof.

6 Sælir eru þeir sem styrk frá þér og þrá það eitt ganga veg þinn. 7 Þegar þeir ganga gegnum táradalinn, þá breytir þú honum í vatnsríka vin og haustregrúð færir þeim blessun. 8 Þeir styrkjast á göngunni og lokum ganga fram fyrir Drottin í musteri hans á Síon.

9 Drottinn, Guð hersveitanna, heyrðu bæn mína! Hlusta þú Guð Ísraels. 10 Guð, þú ert vörn okkar, miskunna honum sem þú smurðir til konungs.

11 Einn dagur í musteri þínu er betri en þúsund aðrir sem eytt er á öðrum stað! Frekar vildi ég vera dyravörður í musteri Guðs míns, en búa í höllum óguðlegra. 12 Því Drottinn er okkur ljós og skjöldur. Vegsemd og náð veitir hann. Hann neitar þeim ekki um nein gæði sem hlýða honum.

13 Drottinn hersveitanna, sæll er maður sem treystir þér.

Veja também