Dar
Dar é princípio do Reino de Deus. Jesus deu tudo — até a própria vida. A Bíblia nos ensina que é mais bem-aventurado dar do que receber, e que Deus ama ao que dá com alegria.
Dar com alegria
Deus ama ao que dá com alegria. Dai e dar-se-vos-á. O generoso prospera e quem abençoa será abençoado.
Hver um sig verður að ákveða hve mikið hann gefur. Reynið ekki að þvinga neinn til að gefa meira en hann sjálfur vill. Guð elskar glaðan gjafara.
Guð mun uppfylla þarfir ykkar með því að veita ykkur allt sem þið þurfið, og meira til, svo að þið hafið nóg fyrir ykkur sjálf og getið gefið öðrum með gleði.
Guð, sem gefur bóndanum útsæði og síðan góða uppskeru honum til framfæris, mun einnig gefa ykkur útsæði og margfalda uppskeru, svo að þið getið gefið æ meira.
Hann mun gefa ykkur mikið til þess að þið getið verið rausnarleg við aðra. Þegar við afhendum gjöf ykkar þeim sem hana eiga að fá, þá mun streyma fram lofgjörð og þökk til Guðs fyrir hjálp hans.
Ef þið hafið áhuga á að gefa, þá skiptir ekki öllu máli hve mikið þið gefið. Guð vill að þið gefið af því sem þið eigið, en ekki af því sem ekki er til.
Gefið og ykkur mun gefið verða! Þið munuð fá ríkulega endurgoldið. Laun ykkar verða mæld með sama mæli og þið mælið öðrum, hvort sem hann er lítill eða stór."
Princípios de generosidade
Honra ao Senhor com as tuas primícias. Não negues o bem a quem o merece. A alma generosa prosperará.
O ensino de Jesus
Quando deres esmola, não toque a trombeta. A generosidade do coração importa mais que a grandeza do donativo.
Látið ekki á því bera, eins og hræsnararnir gera, ef þið gefið einhverjum eitthvað. Þeir láta blása í lúður fyrir sig í samkomuhúsunum og á götuhornunum til þess að fá hrós fyrir góðverk sín! Ég segi ykkur satt: Þeir hafa þegar fengið laun sín.
Gætið þess að ekki beri mikið á því þegar þið réttið einhverjum hjálparhönd. Segið vinstri hendinni ekki hvað sú hægri gerir! Faðir ykkar á himnum veit leyndarmálið og mun launa ykkur.
Læknið sjúka og holdsveika, vekið upp dauða og rekið út illa anda. Gefið á sama hátt og þið hafið þegið!
Jesús svaraði: „Ef þú vilt verða fullkominn, þá skaltu selja allt sem þú átt, gefa fátækum andvirðið og þá muntu eignast fjársjóð á himnum. Komdu síðan og fylgdu mér."
Gefðu þeim sem biður þig, og sé eitthvað haft af þér, reyndu þá ekki að ná því aftur.
Þú skalt gleðjast í Drottni – og hann mun veita þér það sem hjarta þitt þráir.
Guðlaus maður tekur lán og borgar ekki, en hinn guðrækni er ónískur og gefur með gleði.
Þótt ég gæfi fátækum aleiguna eða yrði brenndur á báli fyrir trúna á Jesú, en hefði ekki kærleika, væri ég ekkert betri.