Evangelização
A evangelização é a missão suprema da Igreja. Jesus mandou: ide por todo o mundo e pregai o evangelho a toda criatura. O evangelho é poder de Deus para a salvação de todo aquele que crê.
A Grande Comissão
Ide, fazei discípulos de todas as nações. Jesus confiou a seus seguidores a missão de levar a boa notícia ao mundo inteiro.
Farið því og gerið allar þjóðir að mínum lærisveinum. Skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið ykkur. Takið eftir! Ég er með ykkur alla daga allt til enda veraldarinnar."
Síðan sagði hann: „Farið út um allan heiminn og boðið öllum fagnaðarerindið.
En þegar heilagur andi kemur yfir ykkur, þá munuð þið fá djörfung og kraft til að vitna um dauða minn og upprisu fyrir íbúum Jerúsalem, Júdeu, Samaríu – já, öllum heiminum."
Þið eruð ljós heimsins. Allir sjá borg sem reist er á fjalli.
Salt og ljós
Þið eruð salt jarðarinnar, þið eigið að bæta heiminn! Hvernig færi ef þið misstuð seltuna? Þið yrðuð einskis nýt eins og rusl sem fleygt er út og fótum troðið.
Felið því ekki ljósið ykkar heldur látið það skína til að allir sjái það! Leyfið öllum að sjá góðverk ykkar, svo að þeir þakki föður ykkar á himnum.
Upp frá þessu tók Jesús að predika:
„Snúið ykkur frá syndinni og til Guðs, því að ríki himnanna er nálægt."
O poder do evangelho
O evangelho é poder de Deus para a salvação. A fé vem pelo ouvir, e o ouvir pela Palavra de Cristo.
Réttlæti, fyrir trú
Ég blygðast mín ekki fyrir fagnaðarerindið, því það er leið Guðs til eilífs lífs fyrir hvern þann sem trúir honum og treystir á hann. Fyrst var þessi boðskapur einungis fluttur Gyðingum, en nú er öllum opið að koma til Guðs á þennan hátt.
Samt er það svo að trúin kemur af því að hlusta á gleðiboðskapinn – gleðiboðskapinn um Krist.
Ég ákvað að tala eingöngu um Jesú Krist og dauða hans á krossinum.
Kjarni málsins
Kæru vinir, nú vil ég minna ykkur á kjarna fagnaðarerindisins. Hann hefur ekki breyst – það er sami góði boðskapurinn sem ég flutti ykkur forðum. Þið tókuð við honum með fögnuði og gerið enn, því að trú ykkar er grundvölluð á þessum dásamlega boðskap. Hann mun verða ykkur til hjálpræðis ef þið haldið fast í trúna, annars ekki til neins.
Hann notaði fagnaðarerindið til að kalla ykkur til sín, svo að hann gæti veitt ykkur hlutdeild í dýrð Drottins.
Testemunhar e proclamar
Estai sempre preparados para responder com mansidão a todo aquele que pedir razão da vossa esperança.
Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
Af því skulu allir sjá, að þið eruð lærisveinar mínir, að þið elskið hver annan."
Þeir sem eru sannir lærisveinar mínir, bera mikinn ávöxt og verða föður mínum til dýrðar.
Það var einmitt skipun Drottins, þegar hann sagði: „Ég hef sett þig til að vera ljós heiðinna þjóða og flytja hjálpræðið til ystu endimarka jarðarinnar." "
En líf mitt er ekki til neins annars en að vinna það verk, sem Drottinn Jesús fól mér – að flytja öðrum fagnaðarerindið um kærleika og náð Guðs.
„Andi Drottins er yfir mér. Hann hefur valið mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap. Hann hefur sent mig til að boða fjötruðum frelsi, gefa blindum sýn, leysa hina undirokuðu frá áþján og boða að Guð sé fús að hjálpa öllum sem til hans koma."
Jesús svaraði: „Ég fullvissa ykkur um að hver sá sem yfirgefur allt – heimili, bræður, systur, móður, föður, börn eða eignir – af kærleika til mín og til að geta flutt öðrum gleðiboðskapinn, mun fá sín laun. Honum verður launað hundraðfalt! Heimili, bræður, systur, mæður, börn og land – og ofsóknir. Allt þetta mun hann fá á jörðu og auk þess eilíft líf í hinum komandi heimi.
því hver sá sem vill eiga líf sitt fyrir sjálfan sig, mun tapa því. Þeir einir, sem afneita sjálfum sér vegna mín og gleðiboðskaparins, munu kynnast lífinu í raun og veru.
Fazer conhecer
Dai graças ao Senhor, invocai o seu nome, fazei conhecidas as suas obras entre os povos.
Þakkið Drottni fyrir öll hans undursamlegu verk og segið frá þeim meðal þjóðanna.
Aldir liðu, kynslóðir komu og fóru, og hann gætti leyndarmálsins; en nú hefur honum þóknast að segja það þeim sem elska hann og lifa fyrir hann. Þið voruð heiðingjar en hans dýrlega áætlun nær einnig til ykkar! Og þetta er leyndarmálið: Kristur, sem nú lifir í hjörtum ykkar, er ykkar eina von um eilíft líf.
Ráðleggingar til leiðtoga
Þú átt að kenna fólki að lifa heilbrigðu trúarlífi í samræmi við Guðs orð.