Graça
A graça de Deus é favor imerecido. Pela graça somos salvos, pela graça vivemos, pela graça somos sustentados. É o dom mais precioso de Deus — dado a quem não merece.
Salvos pela graça
Pela graça sois salvos, mediante a fé, e isto não vem de vós — é dom de Deus. Não por obras, para que ninguém se glorie.
Það var miskunn Guðs að þakka að þið frelsuðust, með því að trúa á Krist. Trú ykkar er ekki ykkur að þakka, hún er líka gjöf frá Guði. Hjálpræði Guðs er ekki laun fyrir góðverk ykkar og þess vegna getur heldur enginn þakkað sjálfum sér það.
En Guð er svo sannarlega auðugur að miskunn. Þótt við værum andlega dauð og dæmd vegna synda okkar, elskaði hann okkur svo heitt að hann gaf okkur lífið á ný – það gerði hann þegar hann reisti Krist upp frá dauðum. Það er aðeins óverðskuldaðri miskunn hans að þakka að við höfum bjargast.
Allir hafa syndgað – óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans, en Guð lýsir því yfir að við séum saklaus af allri andstöðu við hann, ef við treystum Jesú Kristi, sem í kærleika sínum vill fyrirgefa okkur syndir okkar.
Hvílíkur reginmunur var á Adam og Kristi – honum sem koma átti. Hvílíkur munur einnig á synd mannsins og fyrirgefningu Guðs! Þessi eini maður, Adam, leiddi marga í dauðann með synd sinni. Jesús Kristur veitti mörgum fyrirgefningu vegna miskunnar Guðs.
Áður fyrr ríkti syndin í lífi allra manna og dró þá til dauða, en nú ríkir gæska Guðs og hún veitir okkur á ný samfélag við Guð og hlut í eilífa lífinu sem fæst fyrir Jesú Krist, Drottin okkar og frelsara.
Graça que capacita
A graça me basta, pois o poder se aperfeiçoa na fraqueza. Na graça, não estamos mais sob a lei, mas sob o favor de Deus.
Syndin þarf ekki lengur að vera húsbóndi ykkar, því að nú eruð þið laus við lögin sem syndin þrælkaði ykkur með. Nú eruð þið frjáls vegna kærleika og miskunnar Guðs.
Þýðir þetta að við getum haldið áfram að syndga og kært okkur kollótt um afleiðingarnar? Vegna þess að hjálpræði okkar byggist ekki á því að hlýða lögunum heldur á því að taka á móti náð Guðs!
Nei, auðvitað ekki!
Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til að vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess að við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði að auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi.
Því að fyrirgefning Guðs og hjálpræði hans stendur öllum til boða, og það ókeypis. Þetta sýnir að Guð vill að við snúum okkur frá guðleysi og syndsamlegum nautnum, til góðs og guðrækilegs lífernis,
Verið því allsgáð og horfið örugg fram til endurkomu Jesú Krists. Þá munuð þið fá að njóta blessunar Guðs í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr.
En eftir að þið hafið þjáðst skamma hríð, mun Guð, sem birtir kærleika sinn í Kristi, veita ykkur af sinni eilífu dýrð. Hann mun koma sjálfur til að sækja ykkur og leiða ykkur inn í dýrð sína og gera ykkur sterkari en nokkru sinni fyrr.
A graça de Deus
O Senhor é compassivo e gracioso, tardio em irar-se e grande em amor. Sua graça é nova a cada manhã.
Hann er miskunnsamur og mildur við þá sem eiga það ekki skilið. Hann er seinn til reiði og fullur náðar og kærleika.
Gæska þín og velþóknun fylgja mér alla ævidaga mína og síðan fæ ég að búa hjá þér að eilífu!
Náð Drottins Guðs sé með okkur. Hann veiti okkur gæfu og gengi.
Ó, Drottinn, ég er í nauðum staddur, heyrðu hróp mitt! Hlustaðu á mig! Svaraðu og hjálpaðu mér!
Viver pela graça
A graça de nosso Senhor Jesus Cristo esteja convosco. Perdoando e confessando, experimentamos a graça restauradora.
Náð Drottins Jesú Krists sé með öllum þeim sem hann hefur helgað.
Amen.
Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda þínum.
Páll
Göngum því með djörfung að hásæti Guðs, til þess að við getum meðtekið miskunn hans og fengið hjálp þegar við þurfum á að halda.
En líf mitt er ekki til neins annars en að vinna það verk, sem Drottinn Jesús fól mér – að flytja öðrum fagnaðarerindið um kærleika og náð Guðs.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
Faðirinn á himnum mun fyrirgefa ykkur ef þið fyrirgefið þeim sem hafa brotið gegn ykkur, en ef þið fyrirgefið þeim ekki, mun hann ekki heldur fyrirgefa ykkur.