Publicidade

Romanos 3

Rök fyrir dómi Guðs

1 Hvaða gagn er þá af því vera Gyðingur? Hafa þeir einhver sérstök forréttindi hjá Guði? Hefur hin gyðinglega siðvenja, umskurnin, eitthvert gildi? 2 , það hefur marga kosti vera Gyðingur. Fyrst og fremst þann Guð trúði þeim fyrir lögum sínum (svo þeir gerðu sér grein fyrir vilja hans og hlýddu honum). 3 Það er vísu rétt sumir þeirra reyndust ótrúir, en tekur Guð loforð sín aftur vegna þess eins þeir brugðust? 4 Nei, sjálfsögðu ekki! Þótt sérhver maður reyndist lygari, væri Guð það ekki. Munið þið hvað stendur í Davíðssálmunum um þetta:

Guðs orð mun alltaf reynast satt og rétt, jafnvel þótt einhver dragi það í efa."

5 , en," segja sumir, sviksemi okkar við Guð verður til góðs syndir okkar þjóna góðum tilgangi. Þegar fólk sér hversu vondir við erum, veitir það því athygli hve Guð er góður. Og fyrst synd okkar verður honum til hjálpar, er þá nokkuð réttlæti í því hann refsi okkur?" 6 Þannig tala sumir en slíkar röksemdir ekki nokkurri átt. Hvers konar Guð væri hann ef honum væri sama um syndina ef hann léti sig einu gilda hvort menn óhlýðnuðust boðum hans og vilja og hvernig gæti hann þá sakfellt nokkurn mann? 7 Nei, hann gæti ekki dæmt mig og sakfellt sem syndara ef óheiðarleiki minn og lygi yrðu honum til dýrðar, við það vera borin saman við heiðarleika hans. 8 þetta hins vegar skoðun þín, þá verður niðurstaðan þessi: Því verri sem við erum, því ánægðari verður Guð! Þeir sem þannig tala verðskulda glötun. Hvernig geta menn haldið því fram þetta boðskapur sem ég flyt?

Allir hafa syndgað

9 En erum við Gyðingar betri en annað fólk? Nei, alls ekki. Við höfum þegar sýnt fram á allir menn eru syndarar, Gyðingar jafnt sem heiðingjar.

10 Um þetta segir Gamla testamentið:

Enginn maður er réttlátur, ekki einn einasti. 11 Enginn maður þekkir Guð í raun og veru þráir kynnast honum. 12 Allir hafa farið sína eigin leið og villst. Enginn hefur í einu og öllu lagt stund á hið góða, ekki einn einasti. 13 Tal mannanna er viðbjóðslegt og rotið, , rétt eins og nálykt frá opinni gröf. Lygin loðir við tungu þeirra og allt sem þeir segja hefur í sér brodd og banvænt eitur höggormsins. 14 Munnur þeirra er fullur formælinga og beiskju. 15 Þeir eru fljótir til drepa og hata hvern þann sem er þeim ósammála. 16 Hvar sem þeir fara, skilja þeir eftir sig eymd og ógæfu, 17 og þeir hafa engan skilning á því hvað það er njóta öryggis og blessunar Guðs. 18 Þeim er alveg sama um Guð og hvað honum finnst um þá."

19 Dómur Guðs er þungur yfir Gyðingum, því þeim ber hlýða lögum Guðs, en ekki leggja stund á hið illa. Þeir hafa því enga afsökun, enginn þeirra. Þegar allt kemur til alls verður heimurinn þagna, því hann er sekur frammi fyrir hinum almáttuga Guði.

20 Skiljið þið , enginn getur orðið réttlátur í augum Guðs með því hlýðnast lögunum? Eftir því sem við kynnumst lögum Guðs betur, því betur sjáum við við getum alls ekki hlýtt þeim. Tilgangur laganna er einn sýna okkur fram á við erum syndarar.

Réttlæti Guðs fyrir trú

21,22 En hefur Guð bent okkur á aðra leið til sín. Hún felst ekki í því menn skuli vera góðir og reyna hlýða lögunum, heldur er um nýja leið ræða (reyndar er hún ekki því Gamla testamentið sagði frá henni fyrir langa löngu). Hún er þessi: Guð vill taka okkur í sátt við sig og sýkna okkur, ef við treystum því Jesús Kristur fyrirgefi og taki burt syndir okkar. Öll getum við frelsast á þennan eina og sama hátt: koma til Krists, og þá skiptir engu hver við erum eða hvernig við höfum lifað. 23 Allir hafa syndgað óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans, 24 en Guð lýsir því yfir við séum saklaus af allri andstöðu við hann, ef við treystum Jesú Kristi, sem í kærleika sínum vill fyrirgefa okkur syndir okkar.

25 Guð sendi Jesú Krist til taka á sig hegninguna fyrir syndir okkar og binda enda á reiði Guðs í okkar garð. Við frelsumst frá þessari reiði Guðs fyrir blóð Krists, það er segja, vegna dauða hans á krossinum og með því trúa á hann og treysta hjálp hans. Í öllu þessu var Guð fullkomlega réttlátur, jafnvel þótt hann hafi ekki refsað þeim sem syndguðu fyrr á tímum, því hann leit fram til þess tíma er Kristur kæmi og tæki burt syndir þeirra. 26 Guð getur á sama hátt tekið á móti syndurunum á okkar dögum, því Jesús einnig fyrir þeirra syndir. En er nokkurt réttlæti í því Guð láti afbrotamenn ganga lausa og lýsi því yfir þeir séu saklausir? , það getur hann ef þeir trúa því Jesús hafi fyrirgefið þeim syndir þeirra.

Guð fer ekki í manngreinarálit

27 Getum við þá hrósað okkur af góðverkum okkar og sagt þeirra vegna eigum við skilið hjálp Guðs? Nei, alls ekki. Hvers vegna ekki? Vegna þess við fáum ekki fyrirgefninguna sem laun fyrir góðverk okkar, heldur fyrir trú á það sem Kristur gerði. 28 Þannig frelsumst við fyrir trúna á Krist en ekki fyrir það góða sem við gerum. 29 Frelsar Guð einungis Gyðinga á þennan hátt? Nei, þetta á einnig við um heiðingjana, 30 því Guð fer ekki í manngreinarálit. Ef við trúum þá sýknar Guð okkur, hvort sem við erum Gyðingar eða heiðingjar. 31 Og segjum við séum frelsuð fyrir trúa, þýðir það þá ekki við séum þar með laus undan því þurfa hlýða lögum Guðs? Nei, þvert á móti, því sannleikurinn er eina leiðin til hlýða Guði er trúa á Jesú Krist.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-