Irmãos
A comunhão entre irmãos é marca da igreja verdadeira. A Bíblia nos chama a amar uns aos outros como Cristo nos amou — com perdão, encorajamento e cuidado mútuo.
Amor fraternal
Um novo mandamento vos dou: que vos ameis uns aos outros. Nisto conhecerão que sois meus discípulos — pelo amor entre vós.
Nú gef ég ykkur nýtt boðorð: „Elskið hver annan jafn innilega og ég hef elskað ykkur." Af því skulu allir sjá, að þið eruð lærisveinar mínir, að þið elskið hver annan."
Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna að þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi.
Ef einhver segir: „Ég elska Guð," og heldur áfram að hata bróður sinn, sem hann umgengst og sér, hvernig getur hann þá elskað Guð, sem hann hefur aldrei séð?
En sá sem elskar meðbróður sinn og gengur í ljósi Krists, kemst leiðar sinnar án þess að hrasa í myrkri og synd.
Þetta verðið þið að skilja
Þið eruð Guðs börn, ef þið trúið því að Jesús sé Kristur – að hann sé sonur Guðs og frelsari ykkar. Þeir sem elska föðurinn, eiga einnig að elska börnin hans.
Og við það að trúa að Kristur gæti frelsað ykkur, hafa sálir ykkar hreinsast af eigingirni og hatri og því getið þið elskað hvert annað innilega af hjarta.
Comunhão e edificação
Não abandoneis a congregação. Encorajem-se mutuamente, cantem juntos e instruam-se na Palavra de Cristo.
Vanrækjum ekki söfnuð okkar eins og sumir gera, heldur hvetjum og áminnum hvert annað, sérstaklega nú er endurkoma Jesú nálgast.
Minnist alls þess sem Kristur kenndi, því að orð hans lífga og auka skilning og hyggindi. Uppfræðið hvert annað í orði hans og flytjið það í sálmum, söngvum, andlegum ljóðum og lofsyngið Drottni með þökk í huga.
Ræðið saman um Drottin, vitnið í sálma og söngva, syngið andlega söngva. Syngið og leikið Drottni lof í hjörtum ykkar
Perdão e reconciliação
Se o teu irmão pecar contra ti, vai e repreende-o a sós. O perdão e a reconciliação preservam a unidade do corpo de Cristo.
Um syndugan meðbróður
Ef einhver í söfnuðinum syndgar, skaltu fara til hans og ræða við hann einslega um mistök hans. Ef hann hlustar og játar sekt sína, hefur þú bjargað honum. En ef hann lætur sér ekki segjast við orð þín, skaltu fara til hans á ný og fá með þér einn eða tvo til viðbótar til að staðfesta mál þitt.
Um syndugan meðbróður
Ef einhver í söfnuðinum syndgar, skaltu fara til hans og ræða við hann einslega um mistök hans. Ef hann hlustar og játar sekt sína, hefur þú bjargað honum. En ef hann lætur sér ekki segjast við orð þín, skaltu fara til hans á ný og fá með þér einn eða tvo til viðbótar til að staðfesta mál þitt. Ef honum verður ekki þokað þrátt fyrir það, skaltu láta taka málið upp í söfnuðinum. Ef úrskurður safnaðarins verður þér í vil, en bróðir þinn vill ekki beygja sig fyrir honum, skal honum vísað úr söfnuðinum. Ég segi ykkur hér með: Hvað sem þið bindið á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þið leysið á jörðu, verður leyst á himnum.
Ég segi ykkur einnig að verði tveir ykkar sammála um að biðja einhvers, mun faðir minn á himnum veita ykkur það. Því að hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra."
Þannig mun faðir minn á himnum einnig fara að við ykkur, ef þið fyrirgefið ekki bræðrum ykkar af heilum hug."
Þá mun ég, konungurinn, svara þeim og segja: „Þetta sem þið gerðuð bræðrum mínum, gerðuð þið mér."
Hver sá, sem gerir vilja Guðs, er bróðir minn, systir eða móðir."
Gættu þess að ávíta aldrei roskinn mann harðlega en fræddu hann með hógværð og virðingu, eins og hann væri faðir þinn. Unga menn skaltu áminna sem elskaða bræður, aldraðar konur sem mæður, stúlkur sem systur og gættu þess að hugur þinn sé hreinn gagnvart þeim.
Ef einhver neitar að hjálpa ættingjum sínum sem eru hjálpar þurfi, og þá sérstaklega ef um fjölskyldumeðlimi hans er að ræða, þá hefur hann engan rétt á að kalla sig kristinn. Slíkur maður er verri en heiðingi!