Jesus me ama
Jesus me ama — essa certeza transforma vidas. O amor de Cristo não depende do nosso merecimento, mas da sua natureza. Ele nos amou primeiro, e nada pode nos separar desse amor.
Ele me amou primeiro
Nós amamos porque Ele nos amou primeiro. O amor de Deus se manifestou em nos enviar seu Filho como propiciação pelos nossos pecados.
Af þessu má sjá að kærleikur okkar til hans er afleiðing af kærleika hans til okkar.
Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.
Kærleikurinn – einkenni Guðs barna
Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn á himnum hefur sýnt okkur, að við megum kallast hans börn og það erum við sannarlega! En fáir þekkja Guð og því skilur fólk ekki að við erum börnin hans.
Við vitum að sannur kærleikur birtist í því að Kristur dó fyrir okkur, við ættum því einnig að fórna lífi okkar fyrir meðbræðurna.
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf.
En Guð sýndi okkur takmarkalausan kærleika sinn, er hann sendi Krist í dauðann fyrir okkur meðan við vorum enn fjötruð í synd og aðskilin frá honum.
Amor inseparável
Nem a morte, nem a vida, nem qualquer outra criatura poderá nos separar do amor de Deus em Cristo Jesus nosso Senhor.
Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
Getur þá nokkuð útilokað okkur frá kærleika Krists? Hvað með erfiðleika og ógæfu ýmiss konar? Eru ekki ofsóknir og niðurlæging, sem við verðum fyrir, sönnun þess að hann hafi ekki lengur velþóknun á okkur? Eða hvað um hungur, fátækt og lífshættu? Gefur slíkt ekki til kynna að Guð hafi yfirgefið okkur? Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar. En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur.
og frá Jesú Kristi, hinum trúa votti sannleikans. Hann var sá fyrsti sem reis upp frá dauðum, og hann mun aldrei deyja í annað sinn. Hann er æðri öllum konungum jarðarinnar. Dýrð sé honum! Hann elskar okkur og úthellti blóði sínu til að frelsa okkur frá syndinni. Hann hefur safnað okkur saman inn í ríki sitt og gert okkur að prestum Guðs, föður síns. Lofið hann og gefið honum dýrðina – alla dýrðina! Hann mun ríkja að eilífu! Amen.
Reynið að þóknast Guði
Takið Guð til fyrirmyndar í öllu, eins og barn sem elskar föður sinn og hlýðir honum. Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til að taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög að skapi, rétt eins og sætur ilmur.
Celebrar o amor de Jesus
O amor de Jesus é motivo de cântico e louvor. De manhã cantarei teu amor e à noite proclamarei tua misericórdia.
Þú styrkur minn, um þig vil ég syngja ljóðin mín. Þú háborg mín! Þú minn miskunnsami Guð!
Hann er miskunnsamur og mildur við þá sem eiga það ekki skilið. Hann er seinn til reiði og fullur náðar og kærleika.
Hann er ekki langrækinn né eilíflega reiður. Hann hefur ekki refsað okkur fyrir syndir okkar eins og sanngjarnt var því að miskunn hans við þá sem óttast hann og heiðra, er eins há og himinninn er yfir jörðinni. Hann fleygði burt syndum okkar og það langt, já, eins langt og austrið er frá vestrinu!
Og nú skal ég segja ykkur hvernig við getum prófað kærleikann: Sá elskar mest, sem fórnar lífi sínu fyrir vini sína.
Því að þið þekkið kærleika Drottins Jesú Krists: Þótt hann væri ríkur, þá gerðist hann fátækur ykkar vegna svo að þið auðguðust af fátækt hans.