Publicidade

1 João 4

Elskið hvert annað

1 Elsku vinir, trúið ekki öllu sem þið heyrið, enda þótt menn segi það boðskapur frá Guði. Sannprófið það fyrst. Margir falskennendur eru á ferð um heiminn. 2 Til vita hvort boðskapur þeirra frá heilögum anda, skulum við spyrja hvort Jesús Kristur, sonur Guðs, hafi orðið maður og komið í mannslíkama. Ef þeir viðurkenna það, þá er boðskapur þeirra frá Guði, 3 ef ekki, þá er hann frá andstæðingi Krists andkristinum sem þið hafið heyrt koma muni, og áhrifa hans gætir þegar í heiminum.

4 Kæru ungu vinir, þið tilheyrið Guði og hafið þegar unnið sigur á andstæðingum Krists, því sem er í ykkur, er máttugri en allir falskennendur þessa óguðlega heims. 5 Þeir eru af þessum heimi og hafa þess vegna allan hugann við það sem heimsins er, og heimurinn hefur áhuga á þeim. 6 En við erum Guðs börn og þess vegna vilja þeir einir hlusta á okkur, sem hafa samfélag við Guð. Aðrir hafa ekki áhuga. Við höfum einnig aðra leið til sannprófa hvort einhver boðskapur frá Guði: Ef hann er frá Guði, vill heimurinn ekki hlusta.

7 Kæru vinir, elskum hvert annað, því kærleikurinn er frá Guði. Þeir sem iðka kærleika og umhyggju, sýna þeir eru börn Guðs og þekking þeirra á honum fer vaxandi. 8 sem ekki sýnir kærleika, þekkir ekki Guð, því Guð er kærleikur.

9 Guð hefur sýnt kærleika sinn með því senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf. 10 Kærleikurinn birtist ekki í því við elskuðum Guð, heldur í því hann elskaði okkur og sendi son sinn til afplána refsingu fyrir syndir okkar.

11 Kæru vinir, fyrst Guð hefur elskað okkur svo heitt, ber okkur einnig elska hvert annað, 12 Enginn hefur nokkru sinni séð Guð eins og hann er í raun og veru, en samt lifir hann í okkur, það er segja, þegar við elskum hvert annað og leyfum kærleika hans vaxa í okkur. 13 Guð hefur einnig gefið okkur heilagan anda og það sýnir við lifum í samfélagi við hann. 14 Við höfum séð með eigin augum og vitnum fyrir öllum heiminum, Guð sendi son sinn til verða frelsara allra manna. 15 Hver sem trúir og játar Jesús sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.

16 Við vitum Guð elskar okkur við höfum fundið kærleika hans! Við vitum það einnig vegna þess við trúum orðum hans, hann elski okkur. Guð er kærleikur og sem sýnir kærleika í verki, lifir í Guði og Guð í honum. 17 Ef við lifum í Kristi, vex kærleikur okkar og nær fullkomnun og þá verðum við okkur ekki til skammar eða háðungar á degi dómsins. Þá getum við glöð og hugrökk horfst í augu við hann, því hann elskar okkur og við elskum hann.

18 Okkur er óþarft óttast þann, sem elskar okkur, því hans fullkomni kærleikur rekur burt allan ótta. Ef við erum hrædd, þá er það vegna þess við höldum Guð muni refsa okkur við erum ekki fyllilega sannfærð um hann elski okkur. 19 Af þessu sjá kærleikur okkar til hans er afleiðing af kærleika hans til okkar.

20 Ef einhver segir: Ég elska Guð," og heldur áfram hata bróður sinn, sem hann umgengst og sér, hvernig getur hann þá elskað Guð, sem hann hefur aldrei séð? 21 Boðorð Guðs er svona: , sem elskar Guð, á einnig elska bróður sinn."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-