Publicidade

Salmos 86

1 Drottinn, líttu til mín! Hlustaðu á bæn mína! Svaraðu mér því ég er í nauðum staddur.

2 Bjargaðu mér frá dauða, því ég tilheyri þér. Frelsaðu mig, því ég treysti þér og hlýði. 3 Miskunna mér, Drottinn. Ég mæni til þín og vona á þig liðlangan daginn. 4 Drottinn, leyfðu mér gleðjast því ég tilbið þig einan. 5 Drottinn, þú ert mildur og góður og fús fyrirgefa, gæskuríkur við alla sem ákalla þig.

6 Heyr þú bæn mína Drottinn, því ég ákalla þig í neyð minni. 7 Þegar ég er í vanda staddur hrópa ég til þín því þú hjálpar mér.

8 Enginn hinna heiðnu guða stenst samjöfnuð við þig! Þín verk eru engu lík! 9 Þjóðirnar þú skapaðir þær allar munu koma og lúta þér. Þær munu lofa þitt háa og heilaga nafn 10 því þú ert mikill og gerir furðuverk. Þú einn ert Guð!

11 Sýndu mér, Drottinn, hvert þú vilt senda mig og þangað mun ég fara, því það er vegur sannleikans. Ó, ég gæti tignað þig af heilu hjarta og hreinni samvisku! 12 Ég lofa þig Drottinn Guð minn af öllu hjarta. Ég vil vegsama nafn þitt eilífu. 13 Mikill er kærleikur þinn! Þú ert mér alltaf svo góður! Þú frelsaðir mig úr djúpi heljar.

14 Ofstopamenn rísa gegn mér. Guðlaus illmenni vilja ryðja mér burt. 15 En þú, Drottinn, ert miskunnsamur Guð, seinn til reiði, langlyndur og trúr. 16 Líttu til mín í náð og styrktu mig. Ég er þjónn þinn, frelsaðu mig. 17 Gefðu mér tákn um þú elskir mig. Þegar óvinir mínir sjá það, munu þeir blygðast sín því þú hjálpar mér og huggar mig.

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-