Publicidade

Salmos 5

1,2 Drottinn, hlustaðu á orð mín. Heyr þú mína einlægu bæn. 3 Hlustaðu á kveinstafi mína, þú Guð, konungur minn, því ég mun aldrei biðja til neins nema þín. 4 Á hverjum morgni horfi ég til himins, til þín, og legg bænir mínar fram fyrir þig.

5 Ég veit þú fyrirlítur óguðleika og þeir sem iðka hið illa ekki dveljast hjá þér. 6 Hrokafullir syndarar standast augnaráð þitt ekki, því þú hatar illgjörðir þeirra. 7 Þú munt eyða þeim sem tala lygi og þú hefur andstyggð á morðum og svikum.

8 En hvað um mig? Af náð þinni ég ganga inn í musteri þitt, umvafinn vernd þinni og ást. Ég vil tilbiðja þig í djúpri lotningu.

9 Drottinn, leiddu mig eins og þú lofaðir mér, annars munu óvinir mínir sigra mig. Segðu mér skýrt hvað ég á gera, og hvert ég á fara, 10 því þeir reyna blekkja mig. Hjörtu þeirra eru full af illsku. Tortíming og dauði býr í ráðum þeirra og þeir nota svik og pretti sér til framdráttar. 11 Ó, Guð láttu þá makleg málagjöld. Þeir lendi í eigin gildru. Hrintu þeim burt vegna hinna mörgu afbrota þeirra, því þeir storka þér.

12 En þeir sem treysta þér gleðjast og kætast. Þeir hrópa af gleði því þú verndar þá. Þeir sem elska þig gleðjast yfir þér. 13 Því þú, ó Guð, blessar hinn trúaða, þú verndar hann með skildi elsku þinnar.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-