Jesus Cristo
Jesus Cristo é o centro de toda a Escritura — Deus encarnado, Salvador do mundo, Senhor dos senhores. Nele habita corporalmente toda a plenitude da divindade.
A divindade de Cristo
No princípio era o Verbo, e o Verbo estava com Deus, e o Verbo era Deus. Jesus é Deus revelado em carne humana.
Í upphafi, áður en nokkuð varð til, var Kristur hjá Guði.
Í upphafi, áður en nokkuð varð til, var Kristur hjá Guði. Hann hefur verið frá upphafi og sjálfur er hann Guð. Allt var skapað vegna hans og án hans varð ekkert til sem til er orðið.
Kristur fæddist sem maður og bjó hér á jörðinni meðal okkar, fullur náðar og sannleika. Við sáum dýrð hans – dýrð eingetins sonar hins himneska föður.
Í Kristi sjáum við Guð holdi klæddan og í honum einum er hina sönnu visku og þekkingu að finna.
Í Kristi sjáum við Guð holdi klæddan og í honum einum er hina sönnu visku og þekkingu að finna. Þegar þið lifið með Kristi, þá hafið þið allt sem þið þarfnist, því þá eruð þið í samfélagi við sjálfan Guð. Kristur er æðstur allra valdhafa og öll máttarverk eru honum undirgefin.
Hafið sama huga og Jesús Kristur hafði. Þótt hann væri Guð, þá krafðist hann þess ekki að fá að halda rétti sínum sem Guð, heldur lagði til hliðar mátt sinn og dýrð, varð maður og gekk um sem þjónn.
Hafið sama huga og Jesús Kristur hafði.
Jesus, o Filho de Deus
Tu és o Cristo, o Filho do Deus vivo! Jesus revelou o Pai e demonstrou sua autoridade divina por palavras e obras.
„En þið," spurði hann, „hvað segið þið?" Símon Pétur svaraði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs." „Sæll ert þú, Símon Pétur," svaraði Jesús, „því faðir minn á himnum hefur sjálfur sannfært þig um þetta – þú hefur þetta ekki frá neinum manni.
„Takið eftir! Meyjan mun þunguð verða! Hún mun fæða son og hann verða kallaður „Immanúel" (en það þýðir Guð er með okkur)"."
Þegar foringinn og hermenn hans, sem gættu Jesú, fundu jarðskjálftann og sáu hvað gerðist, greip þá skelfing og þeir hrópuðu:
„Þessi maður hefur áreiðanlega verið sonur Guðs!"
Jesús svaraði honum ekki einu orði. Þá spurði æðsti presturinn: „Ert þú Kristur, sonur Guðs?"
Jesús svaraði: „Já, það er ég og þú munt sjá mig sitja við hægri hönd Guðs og birtast öllum mönnum í skýjum himinsins."
„Verið óhræddar," sagði engillinn. „Þið leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta, er ekki svo? Hann er upprisinn. Hann er ekki hér. Sjáið, þarna lögðu þeir hann.
Dag einn bættist Jesús í þann stóra hóp, sem tók skírn hjá Jóhannesi. Á meðan hann var að biðjast fyrir, opnuðust himnarnir, og heilagur andi kom yfir hann í dúfulíki. Þá heyrðist rödd af himni sem sagði: „Þú ert minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á."
Eu Sou
Jesus disse: antes que Abraão existisse, Eu Sou. Ele se identificou com o nome divino revelado a Moisés na sarça ardente.
„Ég segi ykkur satt," svaraði Jesús, „ég var til þegar Abraham fæddist!"
Ég og faðirinn erum eitt."
Þá sagði hann: „Faðir minn starfar allt til þessa og ég starfa einnig."
Eftir þetta svipuðust leiðtogarnir enn frekar eftir tækifæri til að taka hann af lífi, því að auk þess að brjóta helgidagslöggjöf þeirra, talaði hann um Guð sem föður sinn og gerði sig þar með Guði jafnan.
Eftir þetta svipuðust leiðtogarnir enn frekar eftir tækifæri til að taka hann af lífi, því að auk þess að brjóta helgidagslöggjöf þeirra, talaði hann um Guð sem föður sinn og gerði sig þar með Guði jafnan.
Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. Faðirinn lætur soninn um að dæma syndina, svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.
Og það er líka satt að sú stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína – rödd Guðssonarins – og þeir sem heyra munu lifa.
O Salvador e Senhor
Jesus é o caminho, a verdade e a vida. Não há outro nome dado entre os homens pelo qual devamos ser salvos.
Jesús svaraði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemst til föðurins nema hann trúi á mig.
„Filippus," svaraði Jesús, „þekkir þú mig ekki enn, eftir allan þennan tíma sem við höfum verið saman? Sá sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn. Hvers vegna biður þú þá um að fá að sjá hann? Trúir þú ekki að ég sé í föðurnum og faðirinn í mér? Það sem ég segi, er ekki frá eigin brjósti, heldur frá föðurnum sem í mér er og vinnur verk sitt í gegnum mig.
„Ég er sá sem reisi hina dauðu og gef þeim líf," sagði Jesús. „Hver sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.
„Sagði ég þér ekki: „Ef þú trúir, muntu sjá dýrð Guðs?" " spurði Jesús.
Hann er sá eini sem getur frelsað okkur frá syndinni og annað nafn er ekki til, sem menn geta ákallað sér til hjálpræðis."
Þegar þeir höfðu ekið nokkurn spöl, komu þeir að litlu vatni. „Sjáðu!" sagði maðurinn. „Þarna er vatn. Getur þú ekki skírt mig hér?"
„Jú, það get ég, ef þú trúir af öllu hjarta," svaraði Filippus.
Þá sagði hinn: „Ég trúi að Jesús Kristur sé sonur Guðs."
Síðan stöðvaði hann vagninn, þeir stigu út í vatnið og Filippus skírði hann.
A supremacia de Cristo
Ele é o resplendor da glória de Deus e a expressão exata do seu ser. Toda a plenitude habita nele e por Ele tudo subsiste.
Sonur Guðs endurspeglar dýrð Guðs og allt, sem sonurinn er og gerir, ber þess vitni að hann er Guð. Hann ríkir yfir alheimi með orðum sínum. Hann er sá sem dó til að hreinsa okkur og sýkna af ákæru syndarinnar og settist síðan í hið æðsta heiðurssæti við hlið Guðs almáttugs á himnum.
Þannig varð hann englunum mun æðri og það sannar líka nafnið sem faðir hans gaf honum: „Sonur Guðs", en það nafn er langtum æðra en nöfn og titlar englanna.
Jesús, sonur Guðs, er æðsti prestur okkar. Hann hefur sjálfur farið til himna, okkur til hjálpar, og því skulum við aldrei glata trúnni á hann. Hann er æðsti prestur, sem skilur vel veikleika okkar, því að hann varð fyrir sömu freistingum og við, þótt hann félli aldrei fyrir þeim og syndgaði.
Horfum stöðugt á Jesú, höfund og leiðtoga trúar okkar. Hann var fús að deyja smánardauða á krossi, vegna gleðinnar, sem hann vissi að biði hans, og nú situr hann í heiðurssæti við hástól Guðs.
Það var nauðsynlegt að Jesús yrði líkur okkur bræðrum sínum, til þess að hann gæti orðið okkur trúr og miskunnsamur æðsti prestur, frammi fyrir Guði, prestur, sem bæði væri okkur náðugur og Guði trúr í því að friðþægja fyrir syndir mannanna.
Confessar a Cristo
Todo aquele que confessa que Jesus é o Filho de Deus, Deus permanece nele e ele em Deus. A fé em Cristo é a vitória.
Hver sá sem trúir og játar að Jesús sé sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.
Hver sá sem trúir og játar að Jesús sé sonur Guðs, á Guð í hjarta sínu og lifir í samfélagi við hann.
Guð hefur sýnt kærleika sinn með því að senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til að deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf. Kærleikurinn birtist ekki í því að við elskuðum Guð, heldur í því að hann elskaði okkur og sendi son sinn til að afplána refsingu fyrir syndir okkar.
Guð hefur sýnt kærleika sinn með því að senda einkason sinn, í þennan hrjáða heim, til að deyja fyrir okkur og gefa okkur eilíft líf.
En ef þið haldið áfram að syndga er það merki þess að þið tilheyrið Satani, honum, sem haldið hefur áfram að syndga allt frá því hann drýgði sína fyrstu synd. Sonur Guðs kom til að brjóta niður verk djöfulsins – syndina.
Enginn getur barist til sigurs í þessu stríði, nema hann trúi því að Jesús sé í sannleika sonur Guðs.
Hvað hefur Guð sagt? Að hann hafi gefið okkur eilíft líf og að þetta líf sé í syni hans. Sá, sem trúir á son Guðs, á lífið, en sá, sem ekki trúir, á ekki lífið.
Ef þú játar með munni þínum að Jesús Kristur sé Drottinn þinn og trúir í hjarta þínu að Guð hafi reist hann upp frá dauðum, þá muntu frelsast.
Viver em Cristo
Já não sou eu quem vive, mas Cristo vive em mim. Ele supre toda necessidade, dá paz e reina como Senhor.
Þegar Kristur var krossfestur, var það vegna óhlýðni minnar og synda. Því er ég krossfestur með honum, sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér. Það líf sem ég lifi nú í líkamanum er byggt á trú minni á Guðs son, sem elskaði mig og dó í minn stað.
Guð mun veita ykkur ríkulega allt sem þið þarfnist vegna samfélags ykkar við Krist Jesú.
Látið frið Krists búa í hjörtum ykkar, það er skylda ykkar og jafnframt forréttindi sem hluta af líkama hans. Verið þakklát.
Guð einn hefur gert okkur að því sem við erum og gefið okkur nýtt líf í Kristi Jesú, og hann ákvað fyrir löngu að þetta nýja líf skyldum við nota öðrum til hjálpar.
Lifið í kærleika og fylgið þannig fordæmi Krists, sem elskaði ykkur og fórnaði sjálfum sér frammi fyrir Guði til að taka burt syndir ykkar. Kærleikur Krists til ykkar var Guði mjög að skapi, rétt eins og sætur ilmur.
Eins og líkami ykkar hefur marga limi, eins er líkami Krists. Öll erum við hlutar af honum, og ef hann á að vera heill, þá verðum við að standa saman, því að hvert um sig höfum við mismunandi verk að vinna. Þannig tilheyrum við hvert öðru, og hvert um sig þarf á öllum hinum að halda.
Þökkum Guði fyrir allt þetta. Það er Guð sem gefur okkur sigurinn fyrir Drottin, Jesú Krist.
Takið öllu með ró og stillingu og treystið Drottni, Jesú Kristi. Ef einhver spyr ykkur hvers vegna þið gerið það, verið þá reiðubúin að svara með hógværð og sýnið virðingu þeim sem spyr.
En sannleikurinn er þessi: Það er aðeins til einn Guð og sá sem vísar mönnunum veginn til hans er maðurinn Jesús Kristur,
O Rei eterno
O Rei dos reis voltará em glória e majestade. Todo joelho se dobrará e toda língua confessará que Jesus Cristo é o Senhor.
Síðan sá ég himininn opinn og hvítan hest standa þar. Sá sem á hestinum sat heitir „trúr og sannur" og hann berst og refsar með réttvísi. Augu hans eru sem eldslogar og á höfðinu ber hann margar kórónur. Nafn er á enni hans, en hann einn veit merkingu þess. Föt hans eru blóði drifin og hann er nefndur „orð Guðs". Hersveitir himnanna fylgdu honum á hvítum hestum, en þær voru klæddar dýru líni, hvítu og hreinu.
Í munni sínum hefur hann beitt sverð til þess að höggva þjóðirnar með og hann stjórnar þeim með járnaga. Hann treður og pressar vínþrúgurnar í þró, sem kallast „heiftarreiði Guðs hins útvalda". Á skikkju hans og mitti er skrifað nafn: KONUNGUR KONUNGA OG DROTTINN DROTTNA.
Náð Drottins Jesú Krists sé með öllum þeim sem hann hefur helgað.
Amen.
Síðan sagði hann við Tómas: „Stingdu fingri þínum í lófa mér og leggðu höndina á síðusárið. Vertu nú ekki vantrúaður heldur trúaður."
„Drottinn minn og Guð minn!" sagði Tómas.
Lærisveinarnir sáu hann gera mörg önnur kraftaverk en þau sem hér hefur verið lýst. En þessi bók er rituð til þess að þú trúir að Jesús sé Kristur, Guðssonurinn, og til þess að þú, með trúnni, eignist lífið í samfélaginu við hann.
Ég krefst þess af ykkur að þið elskið hver annan jafn innilega og ég elska ykkur.
Ég segi ykkur sannleikann: Sá sem tekur á móti þeim er ég sendi, tekur á móti mér, og sá sem veitir mér viðtöku, veitir föður mínum viðtöku sem sendi mig."
Ég gef þeim eilíft líf og þeir munu aldrei að eilífu glatast. Enginn skal slíta þá úr hendi minni, því faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er máttugri en nokkur annar. Enginn skal ræna þeim frá mér. Ég og faðirinn erum eitt."
Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf. Guð sendi ekki son sinn til jarðarinnar til að dæma heiminn, heldur til að frelsa hann.
Sá sem trúir á hann verður ekki dæmdur. En sá sem ekki trúir, hefur sjálfur kallað yfir sig dóm og er þegar dæmdur fyrir að vilja ekki trúa syni Guðs.
Sá sem ekki vill deyja sjálfum sér og fylgja mér er mín ekki verður.
Því að hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir mín vegna, er ég mitt á meðal þeirra."
Jesús horfði fast á þá og sagði: „Án Guðs er það ómögulegt, en Guði er enginn hlutur um megn."
„Guð getur það sem menn geta ekki," svaraði Jesús.
Blessun Drottins Jesú Krists sé með anda þínum.
Páll