Orgulho
O orgulho é um dos pecados mais condenados na Bíblia. Deus resiste aos soberbos, mas dá graça aos humildes. A humildade é o caminho da honra verdadeira.
Deus resiste ao soberbo
A soberba precede a ruína e o orgulho antecede a queda. Deus abomina o coração altivo e promete humilhar quem se exalta.
Humildade como caminho
Humilhai-vos diante do Senhor e Ele vos exaltará. A grandeza no Reino vem pelo serviço humilde, não pela autopromoção.
Heilagur andi styrkir okkur gegn öllum illum hvötum. Og Biblían segir líka: „Guð stendur gegn dramblátum, en blessar og hjálpar hinum auðmjúku."
Þegar þið auðmýkið ykkur fyrir Drottni, mun hann upphefja ykkur, hughreysta og hjálpa.
Kristnu vinir, sé einhver ykkar lítils metinn í þessum heimi, hefur hann ástæðu til að gleðjast, því að hann er mikils virði í augum Drottins. Og sá ríki gleðjist af því að Drottinn er ekki háður auðæfum hans. Innan skamms er hann dáinn, eins og blómið, sem skrælnar í sólarbreiskjunni og missir fegurð sína. Þannig fer fyrir hinum ríku, þeir lifa um stund, en deyja svo frá öllu sínu amstri.
Ungu menn, verið leiðtogum ykkar undirgefnir. Þjónið hver öðrum í auðmýkt, því að Guð er andstæðingur dramblátra en blessar og hjálpar auðmjúkum. Ef þið auðmýkið ykkur fyrir Guðs voldugu hönd, mun hann á sínum tíma upphefja ykkur.
Varpið öllum áhyggjum ykkar á hann, því að hann ber umhyggju fyrir ykkur.
Sá sem upphefur sjálfan sig, mun niðurlægjast, en sá sem lítillækkar sig, hlýtur upphefð."
Verið ekki eigingjörn! Sækist ekki eftir því að vaxa í áliti hjá öðrum. Verið auðmjúk. Haldið ykkur ekki betri en aðra. Hugsið ekki aðeins um eigin hag, heldur sýnið öðrum áhuga og því sem þeir hafa fyrir stafni.
Hafið sama huga og Jesús Kristur hafði.
Os perigos do orgulho
O orgulho cega, gera contendas e afasta de Deus. A Escritura adverte contra a soberba da vida e a vã glória mundana.
Heimurinn er fullur af illsku – illum nautnum, spilltu kynlífi, lífsgæðakapphlaupi og hroka sem fylgir auðæfum og upphefð – ekkert af þessu er frá Guði.
Gætið því að ykkur. Hugsið ekki sem svo: Þannig mundi ég aldrei hegða mér, þetta kemur aldrei fyrir mig! Látið þetta ykkur að kenningu verða, því þið gætuð líka gert rangt.
Þótt ég gæfi fátækum aleiguna eða yrði brenndur á báli fyrir trúna á Jesú, en hefði ekki kærleika, væri ég ekkert betri.
Hann hefur valið það, sem heimurinn fyrirlítur og metur einskis, og notar það til að gera að engu það sem heimurinn hrósar sér af, svo að enginn geti nokkurn tíma hreykt sér frammi fyrir Guði.
Í Biblíunni stendur: „Vilji einhver hrósa sér, þá hrósi hann því, sem Drottinn hefur gert, en ekki hann sjálfur." Hrósi einhver sjálfum sér og verki sínu, þá er af litlu að státa, en mæli Drottinn með honum, horfir öðruvísi við.
Síðan bætti hann við: „Það er hugarfarið sem spillir manninum. Frá hjarta hans koma illar hugsanir, girnd, þjófnaður, morð, hórdómur, eftirsókn eftir eigum annarra, illmennska, sviksemi, saurlifnaður, öfund, baktal, hroki og alls konar heimska. Allt þetta illa kemur innan frá og spillir og óhreinkar manninn í augum Guðs?"
Segðu þeim sem ríkir eru að forðast allan hroka og ekki treysta á peningana, því að þeir eyðast. Segðu þeim heldur að hrósa sér af Guði og setja traust sitt á hann, því að hann veitir okkur fúslega allt sem við þörfnumst.
O olhar de Deus
O Senhor não olha como o homem. Ele vê o coração e se agrada dos quebrantados de espírito e dos que tremem diante da sua Palavra.
Starfið saman af gleði. Þykist ekki vera vitrir og sækist ekki eftir vinsældum þeirra sem hátt eru settir. Leitið heldur samfélags við þá sem lægra eru settir og látið ykkur ekki detta í hug að þið vitið allt!
Ef hins vegar heilagur andi stjórnar lífi okkar, þá skapar hann eftirfarandi ávexti í okkur: Kærleika, gleði, frið, þolinmæði, gæsku, góðvild, trúmennsku, hógværð, sjálfsstjórn og bindindi, – ekkert af þessu er í andstöðu við lög Gyðinga.