Seguir a Jesus
Seguir a Jesus é o convite mais transformador da Bíblia. Jesus chamou pescadores, cobradores de impostos e pessoas comuns para deixar tudo e segui-lo. Esse chamado continua vivo hoje.
O chamado de Jesus
Jesus disse: 'Segue-me'. Esse convite simples e poderoso mudou a vida de pescadores, publicanos e pessoas comuns ao longo da história.
Jesús kallaði til þeirra: „Komið og fylgið mér, og ég skal kenna ykkur að veiða menn!" Þá yfirgáfu þeir netin og fóru með honum.
Jesús lagði nú af stað niður veginn og sá þá Matteus, skattheimtumann, sitja hjá skattstofunni. „Komdu og vertu lærisveinn minn," sagði Jesús við hann. Matteus stóð þegar á fætur og fylgdi honum.
Daginn eftir ákvað Jesús að fara til Galíleu. Þá hitti hann Filippus og sagði við hann: „Fylg þú mér."
Á leiðinni sagði maður nokkur við Jesú: „Ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð."
Jesús svaraði: „Refir eiga greni og fuglarnir hreiður en ég, Kristur, á engan samastað."
Við annan mann sagði Jesús: „Fylg þú mér!" Maðurinn tók því vel og sagði: „Leyfðu mér samt að annast útför föður míns fyrst." Þessu svaraði Jesús: „Láttu þá sem ekki eiga eilíft líf um það, en far þú og boða guðsríki."
Enn annar sagði: „Drottinn, ég vil fylgja þér, en leyfðu mér samt fyrst að kveðja þá sem heima eru." „Sá sem lætur leiða sig burt frá því verki, sem ég ætlaði honum," svaraði Jesús, „er ekki hæfur í guðsríki."
O custo do discipulado
Seguir a Jesus exige renúncia. É preciso tomar a cruz diariamente, deixar tudo para trás e amar a Cristo acima de qualquer outro vínculo.
Síðan sagði Jesús við lærisveinana: „Vilji einhver fylgja mér þá verður hann að afneita sjálfum sér, taka upp kross sinn og fylgja mér.
„Sá sem vill fylgja mér, verður að elska mig meira en föður sinn og móður, meira en konu sína og börn, bræður eða systur. Já, meira en sitt eigið líf, annars getur hann ekki verið lærisveinn minn. Enginn getur verið lærisveinn minn nema hann beri sinn eigin kross og fylgi mér eftir.
Þá tók Pétur að telja upp allt sem hann og lærisveinarnir hefðu yfirgefið og sagði síðan: „Við höfum yfirgefið allt og fylgt þér…"
Jesús svaraði: „Ég fullvissa ykkur um að hver sá sem yfirgefur allt – heimili, bræður, systur, móður, föður, börn eða eignir – af kærleika til mín og til að geta flutt öðrum gleðiboðskapinn, mun fá sín laun. Honum verður launað hundraðfalt! Heimili, bræður, systur, mæður, börn og land – og ofsóknir. Allt þetta mun hann fá á jörðu og auk þess eilíft líf í hinum komandi heimi. Þá mun lítið verða úr mörgum sem nú telja sig mikla, en margir sem nú eru fyrirlitnir, munu þar hljóta virðingu."
Caminhar com Cristo
Quem segue a Jesus não anda em trevas, mas tem a luz da vida. Ele nos convida a crescer nele e a servir como Ele serviu.
Seinna, þegar Jesús var að ávarpa mannfjöldann, sagði hann: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki staulast í myrkrinu, því ég mun lýsa honum veginn til eilífs lífs."
Ef þessir Grikkir vilja verða lærisveinar mínir, segið þeim þá að koma og fylgja mér, því að þjónar mínir verða að vera þar sem ég er. Ef þeir fylgja mér, mun faðirinn heiðra þá.
Þjáningar sem þessar, eru hluti þess sem Guð ætlaði ykkur að þola. Kristur þjáðist fyrir ykkur og hann er fyrirmynd ykkar; fetið í hans fótspor! Hann syndgaði ekki og aldrei sagði hann ósatt. Væri honum hallmælt, svaraði hann aldrei í sömu mynt og ekki hótaði hann kvölurum sínum hefnd heldur lagði mál sitt í hendur Guðs, sem allt dæmir af réttvísi.
Nei, við þráum að fylgja sannleikanum og segja sannleikann, gera það sem rétt er og lifa heiðvirðu lífi, Með því líkjumst við Kristi meir og meir, honum sem er höfuð líkamans, en líkaminn er kirkjan. Þegar líkaminn – söfnuðurinn – er undir hans stjórn, þá er hann allur samtengdur á fullkominn hátt. Hver líkamshluti vinnur sitt sérstaka starf og hjálpar hinum hlutum líkamans, þannig að allur líkaminn vex og uppbyggist í kærleika.