Trabalho
O trabalho é uma ordenança divina desde a criação. Deus colocou o homem no jardim para cultivar e guardar, revelando que o labor é parte do propósito humano e um meio de glorificá-lo.
Trabalho como vocação divina
Deus nos criou para trabalhar com propósito. O trabalho é expressão da imagem divina em nós e deve ser feito como para o Senhor.
Hvað sem þið gerið, þá vinnið af samviskusemi og gleði, eins og þið væruð að vinna fyrir Drottin en ekki menn.
Hvað sem þið gerið, þá vinnið af samviskusemi og gleði, eins og þið væruð að vinna fyrir Drottin en ekki menn. Og munið að þið eruð erfingjar Guðs – við öll, sem þjónum honum.
Hvað sem þið gerið eða segið, þá gerið allt vegna Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.
Vinnið vel, ekki aðeins meðan yfirmaður ykkar fylgist með, til þess að svíkjast síðan um þegar hann snýr sér að öðru. Vinnið alltaf samviskusamlega og með gleði, eins og þið væruð að vinna fyrir Krist og þá gerið þið vilja Guðs. Munið að Drottinn mun launa ykkur allt sem þið hafið gert vel, hvort sem þið eruð þrælar eða frjálsir menn.
Jú, sjáið til. Það er vegna þess að allt sem þið gerið á að vera Drottni til dýrðar, jafnvel matur ykkar og drykkur.
Kæru vinir – framtíðarsigurinn er tryggður! Verið því sterk, óbifanleg, sístarfandi fyrir Drottin, og vitið að ekkert, sem þið gerið fyrir hann, er til einskis.
og látið kærleikann leiða ykkur í öllu.
Diligência e recompensa
A mão diligente enriquece, mas a preguiça traz pobreza. A Bíblia valoriza o esforço honesto, dedicado e perseverante em toda obra.
Planejamento e excelência
A excelência no trabalho honra a Deus. Devemos nos dedicar com competência, entregar nossos planos ao Senhor e buscar o melhor em cada tarefa.
Starfaðu af trúmennsku svo að Guð geti gefið þér góðan vitnisburð og þú þurfir ekki að blygðast þín þegar Guð prófar verk þín. Þú verður að þekkja orð hans, vita hvað það segir og hvað það þýðir.
Starfaðu af trúmennsku svo að Guð geti gefið þér góðan vitnisburð og þú þurfir ekki að blygðast þín þegar Guð prófar verk þín. Þú verður að þekkja orð hans, vita hvað það segir og hvað það þýðir.
Öll Biblían er orð Guðs, því að hún er innblásin af heilögum anda. Hún kennir okkur sannleikann og bendir okkur á það sem rangt er í lífi okkar. Hún leiðréttir okkur og hjálpar okkur að gera það sem rétt er. Hún er verkfæri Guðs til að móta líf okkar og gera okkur hæf til að vinna það sem gott er.
Hvert sem starf ykkar er, þá gætið þess að kvarta hvorki né deila, því að þá hefur enginn ástæðu til að tala illa um ykkur. Lifið hreinu, saklausu lífi, eins og börn Guðs, í myrkum heimi óheiðarleika og miskunnarleysis. Þið eruð leiðarljós sem á að vísa öðrum veginn til himins.
O contentamento no trabalho
Deus nos dá a capacidade de desfrutar do nosso trabalho. Poder comer, beber e encontrar satisfação em nosso labor é um dom divino.
A responsabilidade cristã
O cristão deve trabalhar com suas próprias mãos, viver dignamente e ser exemplo de dedicação. Quem não trabalha, não coma.
Við sögðum við ykkur: „Sá sem ekki vill vinna, á ekki heldur að fá mat."
Engu að síður höfum við frétt að sumir ykkar séu óreglusamir, neiti að vinna, en séu þess í stað að skipta sér af því sem þeim kemur ekki við. Við biðjum þá menn, í nafni Drottins Jesú Krists, að hætta öllu slóri, koma sér að verki og vinna fyrir sér!
Það er ykkur til sóma að lifa kyrrlátu lífi, vera skyldurækin og stunda störf ykkar, eins og við höfum áður sagt. Þannig hegðið þið ykkur með sóma gagnvart þeim sem ekki eru trúaðir og verðið upp á engan komin.
Sá sem hefur vanið sig á að stela, hætti því og noti þess í stað hendur sínar við heiðarleg störf, svo að hann hafi eitthvað að gefa þeim sem þurfandi eru.
Guð mun uppfylla þarfir ykkar með því að veita ykkur allt sem þið þurfið, og meira til, svo að þið hafið nóg fyrir ykkur sjálf og getið gefið öðrum með gleði.
Hér er því um að ræða fullkomna hvíld, sem enn stendur fólki Guðs til boða. Kristur hefur þegar gengið þangað inn og nú hvílist hann að loknu verki sínu eins og Guð gerði eftir sköpunina.
Náð Drottins Guðs sé með okkur. Hann veiti okkur gæfu og gengi.
Takið eftir fuglunum. Þeir hafa ekki áhyggjur af því hvað þeir eiga að borða, þeir þurfa hvorki að sá né uppskera né safna í forðabúr, því að faðir ykkar á himnum sér fyrir þeim. Þið eruð miklu dýrmætari en fuglarnir, í hans augum.
Hver mun gera ykkur illt, ef þið leggið ykkur fram um að gera gott?
Ég segi ykkur satt: Sá sem á mig trúir, mun gera sömu kraftaverk og þau sem ég gerði, og jafnvel enn meiri, því að ég fer til föðurins. Hvað sem þið biðjið föðurinn um, mun ég gera ef þið biðjið hann um það í mínu nafni. Allt það sem ég, sonurinn, geri fyrir ykkur, verður föður mínum til vegsemdar.
En líf mitt er ekki til neins annars en að vinna það verk, sem Drottinn Jesús fól mér – að flytja öðrum fagnaðarerindið um kærleika og náð Guðs.
Gætið þess að verða ekki eins og þeir, því að þá glatið þið því, sem þið hafið þegar öðlast í samfélaginu við Guð. Látið ekkert koma í veg fyrir að þið fáið full laun frá Drottni.