Publicidade

1 Coríntios 16

Lokaorð

1 Varðandi peningana, sem þið eruð safna handa söfnuðinum í Jerúsalem, þá skuluð þið fara eins og ég hef sagt söfnuðinum í Galatíu. 2 Hvern sunnudag skuluð þið, hvert og eitt, leggja til hliðar þá upphæð sem efni leyfa. Látið þetta ekki dragast þangað til ég kem. 3 En þegar ég kem, mun ég senda kærleiksgjöf ykkar til Jerúsalem, ásamt bréfi mínu, með traustum sendiboðum, sem þið hafið sjálf valið til fararinnar. 4 Hafi ég sjálfur tíma til fara, þá geta þeir orðið mér samferða.

5 Ég kem til ykkar frá Makedóníu, en þar mun ég aðeins hafa stutta viðdvöl. 6 Ef til vill mun ég dvelja nokkuð hjá ykkur, jafnvel allan veturinn, og eftir það getið þið sent mig áfram til næsta ákvörðunarstaðar. 7 Í þetta sinn ætla ég sem sagt vera lengur með ykkur, ef Drottinn leyfir. 8 Hér í Efesus ætla ég dveljast fram hvítasunnu, 9 því hér hef ég nóg gera við predika og kenna. Hér er mikið um vera, en andstæðingarnir eru líka margir.

10 Ef Tímóteus skyldi koma, sjáið þá til þess honum líði vel, því hann vinnur verk Drottins eins og ég. 11 Látið engan lítilsvirða hann vegna þess hve ungur hann er og þegar hann hefur lokið sér af hjá ykkur, sendið hann þá ánægðan til mín. Ég hlakka til sjá hann, svo og hina bræðurna, sem væntanlegir eru. 12 Ég bað Apollós verða samferða bræðrunum til ykkar, en hann fékkst ekki til þess , hann kemur seinna, ef tækifæri býðst.

13 Vakið! Standið stöðug í trúnni. Verið djörf og sterk 14 og látið kærleikann leiða ykkur í öllu.

15 Þið munið eftir Stefanasi og fjölskyldu hans, en þau voru fyrst til taka trú í Grikklandi. Þau hafa helgað sig starfinu til hjálpar kristnum mönnum. 16 Verið þeim hjálpleg og fylgið ráðleggingum þeirra, svo og öðrum þeim er vinna meðal ykkar af sömu alúð og dugnaði og þau. 17 Það gleður mig mjög Stefanas, Fortúnatus og Akkaíkus hafa heimsótt ykkur. 18 Þeir hafa veitt mér mikla hjálp og bætt mér upp fjarveru ykkar. Þeir hafa verið mér til mikillar uppörvunar og styrktar, og ég er viss um þið hafið sömu reynslu af þeim og ég.

19 Söfnuðirnir hér í Litlu-Asíu senda ykkur kærar kveðjur. Akvílas og Priska biðja heilsa, svo og söfnuðurinn sem kemur saman á heimili þeirra. 20 Allir vinirnir hér senda ykkur kveðjur. Heilsið hvert öðru hjartanlega.

21 Þessi kveðjuorð rita ég eigin hendi: 22 sem ekki elskar Drottin, er útilokaður frá samfélaginu við Guð og þar með undir bölvun. Kom þú Drottinn Jesús! 23 Kærleikur og náð Drottins Jesú með ykkur. 24 Mínar innilegustu kveðjur til ykkar allra sem tilheyrið Kristi Jesú. Amen.

Páll

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-