Publicidade

1 João 3

Kærleikurinn einkenni Guðs barna

1 Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn á himnum hefur sýnt okkur, við megum kallast hans börn og það erum við sannarlega! En fáir þekkja Guð og því skilur fólk ekki við erum börnin hans. 2 Kæru vinir, erum við Guðs börn, einmitt núna, og við getum ekki ímyndað okkur hvað við eigum í vændum. Eitt vitum við þó: Þegar hann kemur verðum við eins og hann, því þá munum við sjá hann eins og hann raunverulega er. 3 sem þráir þetta í einlægni reynir varðveita hreinleika sinn, því Kristur er hreinn.

4 En þeir, sem halda áfram syndga, standa í gegn Guði, því öll synd er andstæð vilja hans. 5 Þið vitið hann gerðist maður til geta tekið burt syndir okkar og í honum finnst engin synd. 6 Ef við höldum okkur nálægt honum og hlýðum honum, munum við forðast syndga. Þeir sem halda áfram syndga, gera það vegna þess þeir hafa aldrei kynnst Guði í raun og veru orðið börn hans.

7 Börnin mín, látið engan villa um fyrir ykkur varðandi þetta: Ef þið haldið áfram gera það sem rétt er, þá er það vegna þess þið eruð réttlát eins og Guð. 8 En ef þið haldið áfram syndga er það merki þess þið tilheyrið Satani, honum, sem haldið hefur áfram syndga allt frá því hann drýgði sína fyrstu synd. Sonur Guðs kom til brjóta niður verk djöfulsins syndina. 9 sem er fæddur inn í fjölskyldu Guðs, syndgar ekki af ásettu ráði, því Guð lifir í honum. Hann getur ekki haldið áfram í synd, því hann hefur öðlast nýtt líf frá Guði. Guð hefur vakið það innra með honum og stjórnar honum, hann hefur endurfæðst.

Próf sem leiðir hið sanna í ljós

10 Á þessu getum við séð hver er Guðs barn og hver tilheyrir hinum vonda. Hver sem lifir syndugu lífi og er illa við meðbróður sinn, sýnir hann tilheyrir ekki fjölskyldu Guðs, 11 því boðskapurinn sem við fengum í upphafi, var við ættum elska hvert annað.

12 Verum ekki eins og Kain, sem tilheyrði Satani og drap bróður sinn. Hvers vegna myrti Kain Abel? Vegna þess Kain hafði vanið sig á gera það sem rangt var og vissi líferni bróður síns var betra en hans. 13 Kæru vinir, undrist því ekki þótt heimurinn hati ykkur.

14 Ef við elskum meðbræður okkar, þá er ljóst okkur hefur verið gefið eilíft líf og forðað frá helvíti. sem ekki ber kærleika til annarra, stefnir í eilífan dauða. 15 sem hatar meðbróður sinn er í raun og veru morðingi og sem hyggur á morð, getur ekki átt eilíft líf. 16 Við vitum sannur kærleikur birtist í því Kristur fyrir okkur, við ættum því einnig fórna lífi okkar fyrir meðbræðurna.

17 Segjum svo einhver telji sig kristinn og hafi allt til alls, en horfi svo á þurfandi bróður sinn án þess rétta honum hjálparhönd. Hvernig getur slíkur maður átt í sér kærleika Guðs? 18 Börnin mín, það dugir ekki lengur segja við elskum fólk. Við verðum elska það í raun og veru og sýna það í verki. 19 Ef við gerum það, þá getum við verið viss um við tilheyrum Guði vegna verka okkar og þá höfum við hreina samvisku gagnvart Drottni. 20 En ef við höfum slæma samvisku og finnum við höfum gert rangt, þá veit Drottinn enn betur, því hann þekkir öll okkar verk.

21 Elskulegu vinir, samviska okkar hrein, getum við komið til Drottins í djörfung 22 og fengið allt, sem við biðjum hann um, vegna þess við hlýðum honum og gerum það sem honum er þóknanlegt. 23 Þetta vill Guð við gerum: Trúum á nafn sonar hans, Jesú Krists, og elskum hvert annað. 24 Þeir, sem hlýða Guði, lifa með Guði og hann með þeim. Við vitum þetta er satt, því heilagur andi, sem hann hefur gefið okkur, hefur sagt okkur það.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-