Publicidade

2 Pedro 3

Kristur mun koma á

1 Kæru vinir, þetta er annað bréfið sem ég skrifa ykkur, og í þeim báðum hef ég reynt minna ykkur ef ég á þann sannleika, sem þið þekkið þegar: 2 Sannleikann sem þið lærðuð af hinum heilögu spámönnum og okkur postulunum, sem fluttum ykkur orð Drottins okkar og frelsara.

3 Í fyrsta lagi vil ég minna ykkur á á síðustu tímum munu koma fram lastmælendur, sem reyna valda öllu því tjóni sem þeir geta, og hæðast sannleikanum. 4 Röksemdir þeirra verða á þessa leið: Jesús lofaði koma aftur, ekki satt? En hvað er orðið af honum? Ha? Hann mun aldrei koma! Eins langt og menn muna stendur allt við það sama, allt frá því heimurinn varð til."

5,6 Viljandi gleyma þeir því Guð eyddi jörðinni í gífurlegu flóði, löngu eftir hann hafði skapað heiminn með orði sínu eftir hann hafði notað vatnið til mynda jörðina og umlykja hana. 7 Guð hefur sagt himinn og jörð skuli bíða eldsins á degi dómsins og þá muni allir óguðlegir menn farast.

8 En gleymið því ekki, kæru vinir, í augum Drottins er einn dagur jafn langur og þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. 9 Hann er því alls ekki seinn efna loforðið um endurkomu sína, jafnvel þótt sumum virðist svo. Það veldur bið hans hann vill ekki neinir glatist og því gefur hann syndurunum enn frest til iðrast.

10 Dagur Drottins mun vissulega koma. Hann mun koma óvænt, líkt og þjófur, og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný og frumefni alheimsins brenna upp í eldi. Þá mun jörðin eyðast og allt sem á henni er.

11 Skyldum við ekki þurfa lifa heilögu og guðrækilegu lífi, fyrst allt umhverfis okkur leysist upp á þennan hátt? 12 Horfið fram til þess dags með eftirvæntingu og flýtið fyrir honum, deginum er Guð lætur himnana brenna, frumefnin bráðna og leysast upp í logum. 13 Samkvæmt loforði Guðs væntum við nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem allt er í samræmi við vilja Guðs.

14 Kæru vinir, meðan við bíðum þessara hluta og komu hans, kappkostið þá vera án syndar. Haldið frið við alla menn, svo Drottni líki við ykkur er hann kemur aftur.

15,16 Munið hvers vegna hann bíður. Hann gerir það til þess við getum flutt hjálpræðisboðskap hans út til allra manna. Páll, hinn elskaði og skynsami bróðir okkar, hefur rætt um þetta í mörgum bréfa sinna. Sumt af því sem hann segir er torskilið, og til eru menn, sem af ásettu ráði hegða sér heimskulega og vilja snúa út úr því sem hann segir. Þeir hafa mistúlkað bréf hans svo hrapallega þau allt aðra merkingu en til var ætlast og þannig fara þeir með margt annað í Biblíunni. Afleiðingin er þeir leiða tortímingu yfir sjálfa sig.

17 Kæru vinir, ég vara ykkur við í tíma, svo þið fylgist vel með öllu og látið ekki leiðast afvega af mistökum þessara vondu manna, því þá gætuð þið sjálf orðið eins og þeir. 18 Vaxið heldur andlega og lærið þekkja betur Drottin okkar og frelsara, Jesú Krist. Honum heiður og dýrð, bæði og um alla framtíð. Amen.

Pétur

Veja também

Publicidade
2 Pedro
Ver todos os capítulos de 2 Pedro
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-