Publicidade

2 Timóteo 1

1 Frá Páli, sem vilja Guðs er sendiboði Jesú Krists, til flytja öllum boðskapinn um eilífa lífið, sem fæst fyrir trúna á Jesú Krist. 2 Til Tímóteusar, míns elskaða sonar.

Guð, faðir, og Kristur Jesús, Drottinn okkar, veiti þér náð, miskunn og frið.

Kærleikur Páls til Tímóteusar

3 Tímóteus, mikið er ég Guði þakklátur fyrir þig. Ég bið Guð dag og nótt blessa þig og veita þér allt sem þú þarfnast. Eins og forfeður mínir, þjóna ég Guði og kappkosta hafa hreina samvisku.

4 Ég þrái mjög hitta þig á . Mikið yrði það gaman! Ég man þú táraðist þegar við skildum síðast.

5 Ég veit þú treystir Drottni af heilum hug, rétt eins og móðir þín, hún Evníke, og Lóis amma þín, og ég held traust þitt hafi ekki minnkað.

6 Þess vegna hvet ég þig til efla með þér þá náðargjöf Guðs sem í þér býr gjöfina sem þú fékkst þegar ég lagði hendur yfir þig og bað fyrir þér. 7 Heilagur andi sem Guð gaf þér, vill ekki við óttumst mennina, heldur vöxum í kærleika og krafti Guðs og gætum stillingar. 8 Ef þú endurnýjast í þessum krafti frá degi til dags, muntu aldrei blygðast þín fyrir vitnisburðinn um Drottin, eða fyrir mig, þótt ég í fangelsi vegna Krists. Þá muntu líka verða reiðubúinn þjást með mér vegna Drottins, því hann mun styrkja þig.

9 Það var hann sem frelsaði okkur og útvaldi til vinna sitt heilaga verk, ekki vegna þess við ættum það skilið, heldur vegna eigin ákvörðunar, löngu áður en heimurinn varð til. Hann ætlaði auðsýna okkur kærleika sinn og gæsku í Kristi. 10 hefur hann framkvæmt þessa áætlun sína og sent okkur Jesú Krist, frelsarann, sem braut vald dauðans á bak aftur og opnaði okkur veg til eilífs lífs fyrir trúna á hann. 11 Síðan kaus hann mig til flytja heiðingjunum þennan boðskap og uppfræða þá.

12 Þess vegna þarf ég þjást hér í fangelsinu, en ég skammast mín ekkert fyrir það því ég veit á hvern ég trúi og er þess fullviss hann megnar varðveita allt það sem mér er trúað fyrir, allt til þess dags er hann kemur á .

13 Haltu fast við sannleikann eins og ég kenndi þér hann, einkum það sem varðar trúna og kærleikann, sem Jesús Kristur gefur. 14 Varðveittu vel þá góðu og guðlegu hæfileika sem þér voru gefnir af heilögum anda sem í þér býr.

15 Eins og þú veist eru bræðurnir sem hingað komu frá Litlu-Asíu, allir farnir frá mér og meira segja Fýgelus og Hermogenes. 16 Drottinn blessi Ónesífórus og alla hans fjölskyldu. Oft vitjaði hann mín og uppörvaði. Heimsóknir hans voru eins og ferskur andblær og aldrei blygðaðist hann sín fyrir fjötra mína. 17 Sannleikurinn er þegar hann kom til Rómar, leitaði hann mín um allt og fann mig lokum. 18 Guð blessi hann ríkulega þegar Kristur kemur aftur þú veist manna best hversu hann hjálpaði til í Efesus.

Veja também

Publicidade
2 Timóteo
Ver todos os capítulos de 2 Timóteo
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-