Publicidade

Efésios 2

Þá og

1 Áður voruð þið undir bölvun Guðs þið voruð dauðadæmd vegna synda ykkar. 2 Þið bárust með straumnum og voruð eins og allir aðrir, bundin af synd og hlýðni við hinn volduga Satan, hinn volduga, sem ríkir í andaheiminum og starfar í þeim sem ekki trúa á Drottin. 3 Þannig var eitt sinn ástatt um okkur öll. Við létum stjórnast af illum hvötum, og gerðum allt það sem eigingirni okkar og vondar hugsanir leiddu okkur til við gerðum bara eins og okkur sýndist. Þess vegna beið okkar ekki annað en dómur Guðs. Við vorum ofurseld reiði Guðs, eins og allir sem þannig er ástatt um.

4 En Guð er svo sannarlega auðugur miskunn. 5 Þótt við værum andlega dauð og dæmd vegna synda okkar, elskaði hann okkur svo heitt hann gaf okkur lífið á það gerði hann þegar hann reisti Krist upp frá dauðum. Það er aðeins óverðskuldaðri miskunn hans þakka við höfum bjargast. 6 Hann vakti okkur til nýs lífs með Kristi, flutti okkur inn í ríki hans og bjó okkur stað með honum í hinu himneska ríki allt árangur af verki Jesú Krists. 7 Til þess við gætum borið vitni um óendanlegan kærleika hans, sem birtist í öllu því sem hann hefur gert fyrir okkur.

8 Það var miskunn Guðs þakka þið frelsuðust, með því trúa á Krist. Trú ykkar er ekki ykkur þakka, hún er líka gjöf frá Guði. 9 Hjálpræði Guðs er ekki laun fyrir góðverk ykkar og þess vegna getur heldur enginn þakkað sjálfum sér það. 10 Guð einn hefur gert okkur því sem við erum og gefið okkur nýtt líf í Kristi Jesú, og hann ákvað fyrir löngu þetta nýja líf skyldum við nota öðrum til hjálpar.

11 Því skuluð þið ekki gleyma eitt sinn voruð þið heiðingjar og Gyðingarnir kölluðu ykkur guðlaus og óhrein". (Hjörtu þeirra voru reyndar líka óhrein, enda þótt þeir hefðu haldið fast við allar sínar trúarvenjur og látið umskera sig sem tákn um guðrækni.) 12 Minnist þess á þeim tíma þekktuð þið alls ekki Krist, þið voru óvinir þeirra sem tilheyra Guði og vissuð ekki Guð vildi hjálpa ykkur. Þið voru glötuð, guðvana og vonlaus.

Kristur brúaði bilið

13 tilheyrið þið Kristi Jesú! Þótt þið væruð áður fyrr langt frá Guði, eruð þið nálæg honum . Allt er það því þakka, sem Jesús Kristur gerði fyrir ykkur með dauða sínum.

14 Jesús Kristur veitir okkur frið, og enginn annar. Hann hefur komið á friði milli okkar sem erum Gyðingar, og ykkar heiðingjanna, með því gera okkur öll einni fjölskyldu og brjóta niður vegginn, sem hafði aðskilið okkur svo lengi. 15 Með dauða sínum batt hann enda á þann bitra fjandskap sem var okkar á milli vegna lögmáls Gyðinganna. Lögin veittu Gyðingunum sérstöðu, en útilokuðu heiðingjana. Jesús til binda enda á þetta lagakerfi Gyðinga. Eftir það sameinaði hann þessa tvo andstöðuhópa, með því sameina þá sjálfum sér. Hann sameinaði okkur, svo við urðum öll eitt. Hann gerði okkur nýjum mönnum og þá loks komst friður á. 16 Af því við erum limir á sama líkama, getum við ekki lengur borið kala hvert til annars, því við höfum sæst við Guð. Þessari deilu lauk á krossinum. 17 Síðan boðaði Guð okkur friðinn ykkur heiðingjunum sem voruð svo fjarri honum og einnig okkur Gyðingunum sem stóðum nær. 18 eigum við öll, hvort sem við erum Gyðingar eða heiðingjar, aðgang Guði föður með hjálp heilags anda, vegna þess sem Kristur hefur gert fyrir okkur.

19 eruð þið ekki lengur ókunnug Guði og himinninn ekki framandi land. eruð þið meðlimir í fjölskyldu Guðs. Þið eruð ríkisborgarar og heimamenn í landi hans, ásamt öllum öðrum sem kristnir eru. 20 Þið eruð eins og bygging sem stendur á grunni postulanna og spámannanna, en hornsteinn byggingarinnar er sjálfur Kristur Jesús. 21 Hann tengir okkur öll, sem trúum, saman og lætur okkur vaxa og styrkjast sem fagran helgidóm Guðs. 22 , þið eruð líka, Krists vegna, bústaður fyrir anda Guðs.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-