Publicidade

Hebreus 10

Andstæður gamla og nýja sáttmálans

1 Hið gamla lagakerfi Gyðinga gaf aðeins óljósa hugmynd um allt hið góða, sem Kristur ætlaði veita okkur. Fórnirnar, sem færðar voru samkvæmt þessu gamla lagakerfi, voru endurteknar og æ, ár eftir ár, en samt sem áður gátu þær ekki frelsað neinn sem lifði eftir lögunum. 2 Ef svo hefði verið, þá hefði ein fórn verið nóg, menn hefðu hreinsast í eitt skipti fyrir öll og sektarkennd þeirra þar með verið fjarlægð. 3 En það var öðru nær. Í stað þess létta á samvisku manna, minnti þessi árlega fórn þá á óhlýðni þeirra og sekt. 4 Það er útilokað blóð nauta og geita geti hreinsað burt syndir nokkurs manns.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-