Publicidade

João 4

Konan sem hafði átt fimm menn

1 Þegar Drottni varð ljóst farísearnir hefðu frétt hann fengi fleiri lærisveina og skírði fleiri en Jóhannes 2 (Jesús skírði þó ekki sjálfur heldur lærisveinar hans), 3 þá yfirgaf hann Júdeu og hélt aftur til Galíleu.

4 Á leiðinni þurfti hann fara um Samaríu. 5,6 Um hádegi kom hann í Samverjaþorp sem Síkar heitir, nálægt landi því sem Jakob gaf Jósef syni sínum, en þar er Jakobsbrunnur. Jesús var orðinn þreyttur eftir langa göngu og settist því við brunninn.

7 Í sama bili kom þar samversk kona til þess sækja vatn. Jesús bað hana gefa sér drekka. 8 Hann var einn þessa stundina, því lærisveinar hans höfðu farið inn í þorpið til kaupa mat. 9 Konan varð undrandi á Gyðingur skyldi biðja hana konu og Samverja um nokkuð, því Gyðingar virtu þá ekki viðlits. Hún hafði orð á þessu við Jesú.

10 Hann svaraði: Ef þú þekktir gjöf Guðs og vissir, hver er sem biður þig um vatn drekka, mundir þú biðja mig gefa þér lifandi vatn."

11 Þú hefur hvorki reipi fötu og þessi brunnur er mjög djúpur," sagði hún, hvar ætlar þú í þetta lifandi vatn? 12 Ertu kannski meiri en Jakob forfaðir okkar, sem gaf okkur þennan brunn? Og hvernig ætlar þú bjóða betra vatn en það sem hann sjálfur drakk og synir hans og kvikfé?"

13 Jesús svaraði henni og sagði fólk þyrsti fljótlega aftur, þótt það drykki þetta vatn. 14 En," bætti hann við, vatnið sem ég gef, verður lind hið innra með þeim og veitir eilífa svölun."

15 Herra," sagði konan, gefðu mér þetta vatn svo ég verði aldrei þyrst og þurfi ekki fara hingað daglega eftir vatni."

16 Farðu og náðu í manninn þinn," sagði Jesús.

17,18 Ég er ekki gift," svaraði konan.

Satt er það," svaraði Jesús, þú hefur átt fimm menn og þú ert ekki einu sinni gift þeim sem þú býrð með núna."

19 Herra," sagði konan, þú hlýtur vera spámaður, 20 en segðu mér, af hverju segið þið, Gyðingar, Jerúsalem eini staðurinn þar sem eigi tilbiðja Guð? Við Samverjar höldum því fram rétti staðurinn hér á Gerasímfjalli, þar sem forfeður okkar tilbáðu."

21-24 Kona," svaraði Jesús, tími kemur, þegar ekki skiptir máli hvort við tilbiðjum föðurinn hér eða í Jerúsalem. Spurningin er ekki hvar við tilbiðjum, heldur hvernig. Hverjum manni er nauðsynlegt hjálp heilags anda til geta tilbeðið Guð á réttan hátt og eftir hans vilja. Þið Samverjar biðjið í blindni, af því þið þekkið hann ekki nema litlu leyti, en við Gyðingar þekkjum hann því heimurinn fær hjálpræðið frá okkur."

25 Ja-á," svaraði konan, ég veit Kristur kemur Messías, eins og þið kallið hann og þegar hann kemur mun hann útskýra þetta allt fyrir okkur."

26 Þá sagði Jesús: Ég er hann sem við þig tala."

27 Rétt í þessu komu lærisveinar hans þar . Þeir urðu undrandi sjá hann á tali við konu, en enginn þeirra spurði hann þó hvers vegna eða um hvað þau hefðu verið tala.

28,29 Konan lagði vatnskrúsina frá sér við brunninn, fór inn í þorpið og sagði við alla: Komið! Sjáið manninn sem sagði mér allt, sem ég hef aðhafst! Ef til vill er hann Kristur!" 30 Og fólkið streymdi út úr þorpinu til hitta Jesú.

31 Meðan á þessu stóð hvöttu lærisveinarnir Jesú til sér borða, 32 en hann svaraði: Nei, ég hef mat sem þið vitið ekki um."

33 Hver gaf honum mat?" spurðu lærisveinarnir hver annan.

34 Jesús útskýrði þetta og sagði: Minn matur er gera vilja Guðs, sem sendi mig, og fullkomna hans verk. 35 Haldið þið uppskeran hefjist ekki fyrr en í lok sumars, eða eftir fjóra mánuði? Lítið í kring um ykkur! Hvert sem litið er eru víðáttumiklir akrar, tilbúnir til uppskeru. 36 sem uppsker fær laun og safnar ávöxtum til eilífs lífs, til þess bæði sem sáir og sem uppsker geti glaðst saman. 37 Einn sáir en annar uppsker. 38 Ég sendi ykkur til uppskera þar sem þið hafið ekki sáð, aðrir hafa erfiðað, en þið fáið bjarga uppskerunni."

39 Margir úr þessu samverska þorpi trúðu Jesús væri Kristur vegna orða konunnar sem vitnaði: Hann sagði mér allt sem ég hef aðhafst!" 40,41 Fólkið kom út brunninum til hans og bað hann staldra við hjá sér. Hann dvaldist því þar í tvo daga, og miklu fleiri tóku trú eftir hafa hlustað á hann. 42 Og við konuna sagði fólkið: Það er ekki framar fyrir þín orð við trúum, því við höfum sjálf heyrt og vitum þessi maður er í sannleika frelsari heimsins."

43,44 Eftir tvo daga hélt Jesús áfram til Galíleu. Hann hafði áður sagt: Spámaður er alls staðar mikils metinn nema í sínum heimahögum." 45 En fólkið í Galíleu tók honum samt vel, enda hafði það verið á páskahátíðinni í Jerúsalem og séð sum kraftaverka hans.

Sonur embættismanns hlýtur lækningu

46,47 Á leið sinni um Galíleu kom Jesús til Kana, bæjarins þar sem hann hafði áður breytt vatninu í vín. Meðan hann var þar frétti embættismaður nokkur, sem bjó í Kapernaum, Jesús væri kominn frá Júdeu. Sonur þessa manns var veikur og því fór faðirinn til Kana til finna Jesú. Hann sárbað Jesú koma með sér til Kapernaum og lækna son sinn, sem var nær dauða en lífi.

48 Jesús spurði hann: Hvers vegna er það, getið þið ekki trúað nema þið fáið stöðugt sjá kraftaverk?"

49 En embættismaðurinn bað hann og sagði: Herra, komdu áður en barnið mitt deyr!"

50 Þá sagði Jesús: Farðu heim til þín, sonur þinn lifir:" Maðurinn trúði honum og lagði af stað heim. 51 Á leiðinni mætti hann einum þjóna sinna, sem sagði honum þær gleðifréttir syni hans væri batnað. 52 Þá spurði maðurinn hvenær honum hefði farið batna og svarið var: Um eittleytið í gær fór hitinn skyndilega úr honum!" 53 Þá mundi faðirinn það var einmitt á þeirri stundu sem Jesús hafði sagt við hann: Sonur þinn lifir." Þetta varð til þess embættismaðurinn og allt hans heimafólk tók trú á Jesú.

54 Þetta var annað kraftaverkið sem Jesús vann í Galíleu, en það gerði hann við heimkomuna frá Júdeu.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-