Publicidade

João 5

Trúarleiðtogarnir óánægðir með lækningu

1 Seinna fór Jesús aftur til Jerúsalem til vera þar á trúarhátíð. 2 Inni í borginni rétt við Sauðahliðið var Betesdalaugin og við hana fimm yfirbyggð súlnagöng. 3 Þar mikill fjöldi af veiku fólki lömuðu, blindu eða bækluðu. (Fólk þetta beið eftir vissri hreyfingu vatnsins, 4 því engill Drottins kom af og til og hreyfði við því, og læknaðist sem fyrstur komst ofan í eftir það.)

5 Þarna maður sem verið hafði veikur í þrjátíu og átta ár. 6 Þegar Jesús hann og vissi hve lengi hann hafði verið veikur, spurði hann: Viltu verða heilbrigður?"

7 Það er útilokað," svaraði maðurinn, ég hef engan til hjálpa mér ofan í laugina þegar hreyfing verður á vatninu og þess vegna verður alltaf einhver annar á undan mér."

8 Þá sagði Jesús: Stattu upp, vefðu saman dýnuna þína og farðu heim til þín!"

9 Maðurinn varð heilbrigður á samri stundu! Hann vafði saman dýnuna og gekk.

Þetta gerðist á helgidegi 10 og því sögðu leiðtogar fólksins við manninn sem læknast hafði: Það er óleyfilegt vinna á helgidögum, líka bera dýnu!"

11 sem læknaði mig, sagði mér gera það," svaraði maðurinn.

12 Hver sagði þér gera slíkt?" spurðu þeir hranalega.

13 Það vissi maðurinn ekki, því Jesús hafði horfið í mannþröngina. 14 Seinna hitti Jesús þennan sama mann í musterinu og sagði við hann: ertu heilbrigður. Syndga ekki framar, svo ekki hendi þig eitthvað enn verra."

15 Maðurinn fór þá til leiðtoga fólksins og sagði þeim Jesús væri sem hefði læknað sig. Það varð til þess 16 þeir ofsóttu Jesú fyrir brjóta helgidagslöggjöfina. 17 Þá sagði hann: Faðir minn starfar allt til þessa og ég starfa einnig."

18 Eftir þetta svipuðust leiðtogarnir enn frekar eftir tækifæri til taka hann af lífi, því auk þess brjóta helgidagslöggjöf þeirra, talaði hann um Guð sem föður sinn og gerði sig þar með Guði jafnan.

19 Um þetta sagði Jesús: Sonurinn getur ekkert gert á eigin spýtur. Hann gerir það eitt sem hann sér föðurinn gera og fer síðan eins . 20 Faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt sem hann gerir. Seinna mun sonurinn vinna enn meiri kraftaverk en það lækna þennan mann. 21 Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. 22 Faðirinn lætur soninn um dæma syndina, 23 svo allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.

24 Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. 25 Og það er líka satt stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína rödd Guðssonarins og þeir sem heyra munu lifa. 26 Faðirinn hefur eilíft líf í sjálfum sér og hann hefur einnig veitt syninum sama líf. 27 Og hann hefur veitt honum rétt til dæma syndir allra manna, því hann er mannssonurinn. 28 Látið það ekki koma ykkur á óvart, en stund er svo sannarlega skammt undan, er allir hinir dauðu, sem í gröfunum eru, munu heyra rödd Guðssonarins 29 og rísa upp. Þeir sem gott hafa gert til eilífs lífs, en þeir til dóms, sem lagt hafa stund á hið illa.

30 Ég dæmi engan án þess ráðfæra mig fyrst við föður minn. Dómur minn er í fullu samræmi við hans vilja, réttvís og sanngjarn, því hann er ekki aðeins samkvæmt mínum vilja heldur einnig samkvæmt vilja Guðs sem sendi mig.

31 Þegar ég fullyrði eitthvað um sjálfan mig, trúið þið mér ekki, 32,33 en einn maður talar þó mínu máli og það er Jóhannes skírari. Þið fóruð hlusta á hann og ég undirstrika allt sem hann sagði um mig er satt! 34 Hvers vegna minni ég ykkur á vitnisburð Jóhannesar? , til auðvelda ykkur trúa mér og frelsast, en þó er besti vitnisburðurinn um mig ekki frá manni. 35 Ljós Jóhannesar skein skært um stund og þið nutuð þess og glöddust, 36 en þegar ég segi ég hafi betra vitni en Jóhannes, þá á ég við kraftaverkin sem ég geri. Faðir minn hefur falið mér vinna þau og þau sanna faðirinn hefur sent mig. 37 Hann hefur sjálfur vitnað um mig, þó ekki þannig þið sæjuð hann eða heyrðuð rödd hans. 38 Þið vitið ekki heldur hvað hann segir því þið viljið ekki trúa mér, en boðskapur minn er frá honum.

39 Þið rannsakið Gamla testamentið, því þið álítið það gefi ykkur eilíft líf, en svo vitið þið ekki það vitnar um mig! 40 Hvers vegna viljið þið ekki koma til mín, svo ég geti gefið ykkur eilíft líf?

41,42 Ég sækist ekki eftir vinsældum ykkar, því ég veit vel þið berið ekki kærleika til Guðs. 43 Ég veit hvað ég er segja, því ég kom til kynna ykkur föður minn. Samt viljið þið ekkert með mig hafa. Þið takið hins vegar vel á móti þeim sem koma á eigin vegum, en þá hef ég ekki sent. 44 Það er ekkert undarlegt þótt þið trúið ekki! Þið þiggið heiður hver af öðrum en leitið ekki þess heiðurs sem Guð einn getur veitt!

45 En ég mun samt ekki ákæra ykkur frammi fyrir föðurnum, heldur Móse. Von ykkar um guðsríki hvílir á lögum Móse, 46 en samt hafið þið ekki viljað trúa honum. Hann ritaði um mig, en þið viljið ekki trúa honum og þess vegna viljið þið ekki heldur trúa mér. 47 Fyrst þið trúið ekki orðum hans, þá er ekki undra þótt þið trúið ekki orðum mínum."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-