Jesús læknar blindan mann
1 Eitt sinn er Jesús var á gangi, sá hann mann sem hafði verið blindur frá fæðingu.
2 „Meistari," sögðu lærisveinar hans, „hvers vegna fæddist þessi maður blindur? Var það vegna þess að hann syndgaði eða foreldrar hans?"
3 „Hvorugt," svaraði Jesús. „Það er til að sýna mátt Guðs. 4 Okkur ber að vinna verk þess sem sendi mig, meðan dagur er. Senn kemur nótt og þá leggst öll vinna niður. 5 En meðan ég er enn í heiminum, er ég ljós heimsins."
6 Síðan hrækti hann á jörðina, bjó til leðju úr munnvatninu, bar hana á augu blinda mannsins 7 og sagði: „Farðu og þvoðu þér í Sílóamlaug." (Orðið „Sílóam" merkir „sendur.") Maðurinn fór og þvoði sér og kom aftur sjáandi!
8 Nágrannar hans og aðrir, sem vissu að hann hafði verið blindur betlari, spurðu nú hver annan: „Er þetta sami maðurinn – betlarinn?"
9 Svörin voru á ýmsa vegu og margir hugsuðu: „Þetta getur ekki verið hann, en hann lítur þó eins út!"
En betlarinn sagði: „Ég er maðurinn."
10 Þá spurðu þeir hann hvernig hann hefði fengið sjónina. „Hvað gerðist?"
11 „Maður, sem þeir kalla Jesú," svaraði hann, „bjó til leðju, bar hana á augu mín og sagði mér síðan að fara og þvo hana burt í Sílóamlauginni. Ég gerði eins og hann sagði, og fékk sjónina!"
12 „Hvar er Jesús núna?" spurðu þeir.
„Ég veit það ekki," svaraði hann.