Pular para o conteúdo
Publicidade

Lúkas 20

1 Dag nokkurn var Jesús kenna og predika í musterinu. Þá lögðu æðstu prestarnir til atlögu við hann ásamt öðrum trúarleiðtogum og mönnum úr ráðinu.

2 Þeir kröfðust þess hann segði þeim með hvaða valdi hann hefði rekið musteriskaupmennina út.

3 Áður en ég svara ætla ég spyrja ykkur annarrar spurningar," svaraði hann: 4 Var Jóhannes sendur af Guði eða starfaði hann aðeins í eigin mætti?"

5 Þeir ráðguðust um þetta. Ef við segjum boðskapur hans hafi verið frá himnum, þá erum við fallnir í gildru, því þá spyr hann: Hvers vegna trúðuð þið honum þá ekki?" 6 Ef við segjum hins vegar Jóhannes hafi ekki verið sendur af Guði, þá ræðst múgurinn á okkur, því allir eru vissir um hann hafi verið spámaður." 7 lokum svöruðu þeir: Við vitum það ekki."

8 Þá mun ég ekki heldur svara spurningu ykkar," sagði Jesús.

9 Jesús sneri sér aftur fólkinu og sagði því eftirfarandi sögu: Maður plantaði víngarð, leigði hann nokkrum bændum og fór síðan til útlanda, þar sem hann bjó í nokkur ár. 10 Þegar uppskerutíminn kom, sendi hann einn af mönnum sínum til búgarðsins til sækja sinn hluta uppskerunnar. En leigjendurnir börðu hann og sendu hann tómhentan til baka. 11 Þá sendi hann annan, en sama sagan endurtók sig: Hann var barinn og auðmýktur og sendur allslaus heim. 12 þriðji var einnig særður og enn fór á sömu leið. Honum var líka misþyrmt og hann rekinn í burtu.

13 Hvað á ég gera" sagði eigandi víngarðsins við sjálfan sig. , veit ég það! Ég sendi son minn, sem ég elska, þeir munu áreiðanlega sýna honum virðingu."

14 En þegar leigjendurnir sáu son hans, sögðu þeir: er tækifærið. Þessi náungi á erfa allt landið eftir föður sinn. Komum! Drepum hann, og þá eigum við þetta allt."

15 Þeir drógu hann út fyrir víngarðinn og drápu hann.

Hvað haldið þið eigandinn hafi gert? 16 Það skal ég segja ykkur. Hann mun koma og drepa þá alla og leigja öðrum víngarðinn."

Annað eins og þetta getur aldrei gerst," mótmæltu áheyrendur.

17 Jesús horfði á þá og sagði: Hvað á þá Biblían við þegar hún segir: Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, var gerður hornsteini." 18 Og hann bætti við: Hver sem hrasar um þann stein, mun limlestast og þeir sem undir honum verða, munu sundurkremjast."

19 vildu æðstu prestarnir og trúarleiðtogarnir handtaka hann á stundinni, því þeir skildu sagan um víngarðsmennina átti við þá. Þeir voru einmitt þessir forhertu leigjendur í sögunni. En þeir óttuðust fólkið stofnaði til óeirða ef þeir tækju hann. Þeir reyndu því hann til segja eitthvað sem hægt væri ákæra hann fyrir til rómverska landstjórans, og hann handtekinn.

20 Með þetta í huga sendu þeir til hans njósnara sem þóttust sakleysið uppmálað. 21 Þeir sögðu við Jesú: Herra, við vitum þú ert heiðarlegur kennari. Þú segir alltaf sannleikann og veitir fræðslu um Guð, en hopar ekki fyrir andstæðingum þínum. 22 Segðu okkur eitt er rétt greiða rómverska keisaranum skatt?"

23 Jesús við bragðinu og svaraði: 24 Sýnið mér mynt. Hvers mynd og nafn er á henni?"

Rómverska keisarans," svöruðu þeir.

25 Þá sagði Jesús: Greiðið keisaranum allt sem hans er og gefið Guði það sem Guði ber."

26 Bragðið mistókst. Þeir undruðust svar hans og þögðu.

27,28 Þá komu til hans nokkrir saddúkear. Þeir trúa hvorki á líf eftir dauðann upprisu. Þeir sögðu:

Lög Móse segja deyi maður barnlaus, þá eigi bróðir hans kvænast ekkjunni og börn þeirra skulu teljast börn látna mannsins og bera nafn hans. 29 Við vitum um sjö bræður. Elsti bróðirinn kvæntist en barnlaus. 30 Bróðir hans kvæntist þá ekkjunni og líka barnlaus. 31 Þannig gekk þetta, koll af kolli, þar til allir sjö höfðu átt konuna, en dáið án þess eiga börn. 32 lokum konan líka. 33 spyrjum við: Hverjum þeirra verður hún gift í upprisunni, fyrst hún giftist þeim öllum?"

34,35 Hjónabandið er fyrir þá sem lifa á jörðinni," svaraði Jesús, en þeir sem verðskulda guðsríki ganga ekki í hjónaband við upprisuna, 36 og þeir munu aldrei deyja. Þeir eru synir Guðs og eru eins og englarnir. Þeir hafa risið upp frá dauðum til nýs lífs.

37,38 Hvers vegna efist þið um upprisuna? Sjálfur Móse talar um hana. Hann lýsir því hvernig Guð birtist honum í brennandi runna. Hann talar um Guð Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs." Ef við segjum Drottinn Guð einhvers manns, þá þýðir það maður er lifandi en ekki dauður! Því Guð er sem gefur lífið."

39 Þetta er vel sagt, herra," sögðu nokkrir lögvitringar sem þar stóðu. 40 En fleiri urðu spurningarnar ekki, því þeir þorðu ekki spyrja hann neins!

41 lagði Jesús spurningu fyrir þá og sagði: Af hverju segið þið Kristur afkomandi Davíðs konungs? 42,43 Davíð sagði í Sálmunum: Guð sagði við minn Drottin: Sittu mér til hægri handar, þar til ég legg óvini þína fótum þér." " 44 Hvernig getur Kristur verið hvort tveggja í senn, sonur Davíðs og Drottinn Davíðs?"

45 Síðan sneri hann sér lærisveinum sínum og sagði við þá, svo fólkið heyrði: 46 Gætið ykkar á þessum fræðimönnum! Þeir njóta þess ganga um göturnar í fínum fötum og láta fólk hneigja sig fyrir sér. Þeim finnst vænt um heiðurssætin í samkomuhúsum og hátíðarveislum. 47 En meðan þeir þylja sínar löngu bænir með helgisvip, eru þeir jafnvel hugsa upp ráð til hafa af ekkjum. Guð mun því dæma þessa menn til hinnar þyngstu refsingar."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também