Fæðing Jesú sögð fyrir
26,27 Mánuði síðar sendi Guð engilinn Gabríel til meyjar sem María hét og bjó í þorpinu Nasaret í Galíleu. Hún var trúlofuð manni að nafni Jósef og var hann af ætt Davíðs konungs. 28 Gabríel birtist henni og sagði: „Sæl, þú hin útvalda! Drottinn er með þér!"
29 María varð undrandi og reyndi að skilja hvað engillinn ætti við. 30 „Vertu ekki hrædd, María," sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. 31 Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú. 32 Hann mun verða mikill og kallast sonur Guðs. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs konungs, ættföður hans, 33 og hann mun ríkja yfir Ísrael að eilífu. Á ríki hans mun enginn endir verða!"
34 „Hvernig má það vera?" spurði María, „ég hef ekki karlmanns kennt." 35 Engillinn svaraði: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Guðs mun umlykja þig, barnið þitt verður því heilagt sonur Guðs. 36 Nú eru sex mánuðir síðan Elísabet frænka þín óbyrjan, eins og fólk kallaði hana – varð þunguð í elli sinni! 37 Guði er ekkert um megn." 38 Og María sagði: „Ég vil hlýða og þjóna Drottni. Verði allt eins og þú sagðir." Þá hvarf engillinn.