28 Gabríel birtist henni og sagði: „Sæl, þú hin útvalda! Drottinn er með þér!"
29 María varð undrandi og reyndi að skilja hvað engillinn ætti við. 30 „Vertu ekki hrædd, María," sagði engillinn, „Guð ætlar að blessa þig ríkulega. 31 Innan skamms munt þú verða barnshafandi og eignast dreng, sem þú skalt nefna Jesú.