Pular para o conteúdo
Publicidade

Lucas 1

46 Og María sagði: Ó, ég lofa Drottin! 47 Ég gleðst í Guði, frelsara mínum. 48 Hann mundi eftir lítilmótlegri ambátt sinni og héðan í frá munu allar kynslóðir tala um hvernig Guð blessaði mig. 49 Hann, hinn voldugi og heilagi, hefur gert mikla hluti fyrir mig. 50 Miskunn hans við þá sem trúa á hann, varir frá kynslóð til kynslóðar.

51 Hann hefur unnið stórvirki með mætti sínum og tvístrað hinum stoltu og drambsömu. 52 Hann hefur steypt höfðingjum úr hásætum og upphafið auðmjúka. 53 Hann hefur mettað hungraða gæðum og látið ríka fara tómhenta frá sér. 54 Hann hefur hjálpað þjóni sínum, Ísrael, og ekki gleymt loforðum sínum. 55 Hann lofaði feðrum okkar Abraham og afkomendum hans sýna þeim miskunn eilífu."

Veja também