Publicidade

Lucas 10

Sagan um miskunnsama Samverjann

25 Dag nokkurn kom fræðimaður í lögum Móse til Jesú og vildi prófa rétttrúnað hans. Meistari," sagði hann, hvað þarf maður gera til eignast eilíft líf?"

26 Hvað segja lög Móse um það?" svaraði Jesús.

27 Þar stendur: Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og af öllum huga þínum, og meðbróður þinn eins og sjálfan þig," sagði fræðimaðurinn.

28 Rétt," svaraði Jesús, gerðu þetta og þá muntu lifa."

29 En maðurinn vildi afsaka sig og spurði því: Hver er þá meðbróðir minn?"

30 Jesús svaraði með þessari sögu: Maður var á leið frá Jerúsalem til Jeríkó og lenti í höndum ræningja. Þeir rændu fötum hans og peningum, og börðu hann. Síðan skildu þeir hann eftir hálfdauðan við vegarbrúnina.

31 Af tilviljun fór prestur þarna um. Þegar hann manninn, leit hann undan og hélt áfram. 32 Skömmu síðar kom musterisþjónn þar og er hann hinn slasaða, flýtti hann sér fram hjá.

33 Síðan kom þar lítilsmetinn útlendingur Samverji. Hann manninn og kenndi í brjósti um hann. 34 Hann gekk til hans, hreinsaði sárin og batt um þau. því loknu setti hann særða manninn upp á asnann sinn og studdi hann næsta gistihúsi, þar sem hann veitti honum aðhlynningu um nóttina. 35 Morguninn eftir rétti hann gestgjafanum ríflega upphæð og bað hann annast manninn. Ef reikningurinn verður hærri," sagði hann, þá borga ég mismuninn næst þegar ég kem."

36 Hver finnst þér hafa verið sannur meðbróðir mannsins sem lenti í höndum ræningjanna?"

37 sem hjálpaði honum," svaraði maðurinn. ," sagði Jesús, farðu og gerðu slíkt hið sama."

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-