Publicidade

Lucas 10

30 Jesús svaraði með þessari sögu: „Maður var á leið frá Jerúsalem til Jeríkó og lenti í höndum ræningja. Þeir rændu fötum hans og peningum, og börðu hann. Síðan skildu þeir hann eftir hálfdauðan við vegarbrúnina.

31 Af tilviljun fór prestur þarna um. Þegar hann sá manninn, leit hann undan og hélt áfram. 32 Skömmu síðar kom musterisþjónn þar að og er hann sá hinn slasaða, flýtti hann sér fram hjá.

33 Síðan kom þar að lítilsmetinn útlendingur – Samverji. Hann sá manninn og kenndi í brjósti um hann. 34 Hann gekk til hans, hreinsaði sárin og batt um þau. Að því loknu setti hann særða manninn upp á asnann sinn og studdi hann að næsta gistihúsi, þar sem hann veitti honum aðhlynningu um nóttina. 35 Morguninn eftir rétti hann gestgjafanum ríflega upphæð og bað hann að annast manninn. „Ef reikningurinn verður hærri," sagði hann, „þá borga ég mismuninn næst þegar ég kem."

36 Hver finnst þér nú hafa verið sannur meðbróðir mannsins sem lenti í höndum ræningjanna?"

37 „Sá sem hjálpaði honum," svaraði maðurinn. „Já," sagði Jesús, „farðu og gerðu slíkt hið sama."

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-22_10-02-25-