13 Þá kallaði einhver úr mannþrönginni: „Herra, segðu bróður mínum að skipta með okkur föðurarfi okkar."
14 „Heyrðu vinur," svaraði Jesús, „hver setti mig dómara og skiptaráðanda yfir ykkur? 15 Gætið ykkar! Sækist ekki stöðugt eftir því sem þið eigið ekki. Lífið er ekki tryggt með eignunum, jafnvel þótt miklar séu."
16 Síðan sagði hann þeim dæmisögu: „Ríkur maður átti gott bú og fékk mikla uppskeru. 17 Hlöðurnar voru yfirfullar, svo að hann kom ekki öllu fyrir. Hann hugsaði málið. 18 „Nú veit ég hvað ég geri," sagði hann við sjálfan sig. „Ég ríf þessar hlöður og byggi aðrar stærri og þá verður nóg pláss! 19 Eftir það fer ég mér hægt og segi við sjálfan mig: Jæja vinur, nú áttu birgðir til margra ára. Nú skaltu hvílast og njóta lífsins svo um munar."
20 En Guð sagði við hann: „Heimskingi! Í nótt muntu deyja og hver fær þá allt sem þú hefur eignast?"
21 Þannig fer fyrir þeim sem safnar auðæfum, en er ekki ríkur hjá Guði."
22 Jesús sagði við lærisveina sína: „Hafið ekki áhyggjur af því hvort þið hafið nóg að borða eða föt til að vera í. 23 Lífið er miklu meira en föt og fæði. 24 Sjáið hrafnana. Þeir sá hvorki né uppskera og ekki hafa þeir forðabúr né hlöður, en samt komast þeir af, því að Guð fæðir þá. Þið eruð miklu dýrmætari en fuglarnir í augum Guðs!
25 Hvaða vit er í áhyggjum? Gera þær eitthvert gagn? Geta þær lengt líf þitt um einn dag? Nei, sannarlega ekki! 26 Til hvers er þá að hafa áhyggjur, fyrst þær geta ekki komið slíkum smámunum til leiðar?
27 Lítið á liljurnar! Þær hvorki vinna né spinna, en samt komst Salómon í öllum sínum skrúða ekki í samjöfnuð við þær. 28 Þið efasemdamenn! Hvers vegna haldið þið að Guð muni ekki sjá ykkur fyrir fötum, hann sem skrýðir blómin, sem standa í dag, en falla á morgun? 29 Verið ekki heldur kvíðnir vegna matar, hvað þið eigið að borða eða drekka. Nei, hafið ekki áhyggjur af því, 30 það gera hinir guðlausu, en faðirinn á himnum veit hvers þið þurfið með. 31 Ef þið leitið vilja Guðs með líf ykkar framar öllu öðru, þá annast hann þarfir ykkar frá degi til dags.
32 Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því faðirinn hefur gefið ykkur ríki sitt. 33 Seljið eigur ykkar og gefið þeim sem þurfandi eru og þá munuð þið eignast ótæmandi fjársjóð á himnum! Slíkur fjársjóður mun aldrei rýma né skemmast, því þar eru hvorki þjófar né verðbólga. 34 Þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hugur þinn vera.