Publicidade

Lucas 13

10 Helgidag einn var Jesús kenna í einu af samkomuhúsunum. 11 Tók hann þá eftir konu sem var illa bækluð. Hún hafði verið krypplingur í átján ár og gat ekki rétt úr sér.

12 Jesús kallaði hana til sín og sagði: Kona, þú ert læknuð af sjúkdómi þínum." 13 Og um leið og hann snerti hana rétti hún úr sér og lofaði Guð!

14 En forstöðumaður samkomuhússins varð mjög reiður vegna þess Jesús skyldi hafa læknað hana á helgidegi og hrópaði: Við höfum sex daga til vinna í viku hverri! Komið þá og látið lækna ykkur, en ekki á hvíldardögum."

15 Hræsnarar," svaraði Jesús, þið vinnið á helgidögum. Leysið þið ekki nautgripina af stalli til brynna þeim jafnt á helgidögum sem aðra daga? 16 Er þá rangt af mér leysa þessa konu úr fjötrum, sem Satan hefur haldið henni í, í átján ár, aðeins vegna þess það er hvíldardagur?"

17 Óvinir hans urðu skömmustulegir við þessi orð, en fólkið gladdist vegna dásemdarverkanna sem hann vann.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-