12 Jesús kallaði hana til sín og sagði: „Kona, þú ert læknuð af sjúkdómi þínum." 13 Og um leið og hann snerti hana rétti hún úr sér og lofaði Guð!
14 En forstöðumaður samkomuhússins varð mjög reiður vegna þess að Jesús skyldi hafa læknað hana á helgidegi og hrópaði: „Við höfum sex daga til að vinna í viku hverri! Komið þá og látið lækna ykkur, en ekki á hvíldardögum."
15 „Hræsnarar," svaraði Jesús, „þið vinnið á helgidögum. Leysið þið ekki nautgripina af stalli til að brynna þeim jafnt á helgidögum sem aðra daga? 16 Er þá rangt af mér að leysa þessa konu úr fjötrum, sem Satan hefur haldið henni í, í átján ár, aðeins vegna þess að það er hvíldardagur?"