Týndur – fundinn
1 Skattheimtumenn voru þekktir að óheiðarleika. Þeir komu oft ásamt öðrum stórsyndurum til þess að hlusta á Jesú predika. 2 Faríseunum og lögvitringunum líkaði meinilla að hann skyldi umgangast jafn fyrirlitlegt fólk, og meira að segja borða með því! 3,4 Jesús sagði þeim því eftirfarandi dæmisögu: „Segjum svo að þú ættir hundrað kindur, en ein þeirra villtist í burtu og týndist í óbyggðinni. Myndir þú þá ekki skilja hinar níutíu og níu eftir og fara að leita þeirrar sem týndist, uns þú fyndir hana? 5 Þá yrðir þú svo glaður að þú bærir hana heim á herðum þér. 6 Og kallaðir saman vini þína og granna til að gleðjast með þér yfir því að týnda kindin skyldi hafa fundist.
7 Á sama hátt verður meiri gleði á himnum vegna eins syndara sem snýr sér til Guðs, en yfir öðrum níutíu og níu sem ekki hafa villst frá Guði!