Pular para o conteúdo
Publicidade

Lúkas 15:11-13,20,22,24

11 „Maður nokkur átti tvo syni. 12 Yngri sonurinn sagði við föður sinn: „Ég vil gjarnan fá minn hluta arfsins strax, í stað þess að bíða þangað til þú ert dáinn."

Þá skipti faðirinn auðæfum sínum á milli sona sinna.

13 Nokkrum dögum síðar tók yngri sonurinn saman föggur sínar og hélt til fjarlægs lands. Þar eyddi hann öllum peningunum í skemmtanir og skækjur.

20 Síðan lagði hann af stað heim til föður síns. Faðir hans sá til hans þegar hann nálgaðist, kenndi í brjósti um hann, hljóp á móti honum, faðmaði hann og kyssti.

22 Faðirinn kallaði þá til þjóna sinna og sagði: „Flýtið ykkur! Náið í fallegustu skikkjuna sem til er og færið hann í. Látið líka hring á fingur hans og sækið nýja skó handa honum. 24 Þessi sonur minn var dauður, en nú er hann lifnaður við. Hann var týndur, en nú er hann fundinn." Síðan hófst veislan.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.