Pular para o conteúdo
Publicidade

Lúkas 15:11-24

11 „Maður nokkur átti tvo syni. 12 Yngri sonurinn sagði við föður sinn: „Ég vil gjarnan fá minn hluta arfsins strax, í stað þess að bíða þangað til þú ert dáinn."

Þá skipti faðirinn auðæfum sínum á milli sona sinna.

13 Nokkrum dögum síðar tók yngri sonurinn saman föggur sínar og hélt til fjarlægs lands. Þar eyddi hann öllum peningunum í skemmtanir og skækjur. 14 En þegar hann var að verða peningalaus kom mikil hungursneyð í því landi og hann tók að líða skort.

15 Þá réð hann sig sem svínahirði hjá bónda einum. 16 Hann varð svo hungraður að hann langaði jafnvel í baunahýðið sem svínin átu. Enginn gaf honum neitt.

17 Að lokum áttaði hann sig á eymd sinni og sagði við sjálfan sig: „Verkamennirnir heima hjá föður mínum hafa nóg að borða og meira en það, en hér er ég að veslast upp af hungri! 18 Ég ætla að fara heim til pabba og segja: „Ég hef syndgað bæði gegn Guði og þér. 19 Ég er ekki lengur verður að kallast sonur þinn. Viltu ráða mig sem verkamann hjá þér?" "

20 Síðan lagði hann af stað heim til föður síns. Faðir hans sá til hans þegar hann nálgaðist, kenndi í brjósti um hann, hljóp á móti honum, faðmaði hann og kyssti.

21 Þá sagði sonurinn: „Faðir, ég hef syndgað bæði gegn Guði og þér. Ég er ekki verður að kallast sonur þinn."

22 Faðirinn kallaði þá til þjóna sinna og sagði: „Flýtið ykkur! Náið í fallegustu skikkjuna sem til er og færið hann í. Látið líka hring á fingur hans og sækið nýja skó handa honum. 23 Slátrið síðan alikálfinum því að nú ætlum við að halda veislu! 24 Þessi sonur minn var dauður, en nú er hann lifnaður við. Hann var týndur, en nú er hann fundinn." Síðan hófst veislan.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.