Pular para o conteúdo
Publicidade

Lúkas 16:1-13

Fleiri lærdómsríkar dæmisögur

1 Jesús sagði lærisveinum sínum eftirfarandi sögu: „Ríkur maður réð til sín framkvæmdastjóra til að annast viðskipti sín. Fljótlega tók að kvisast út að maðurinn væri óheiðarlegur.

2 Þá kallaði ríki maðurinn hann fyrir sig og sagði: „Er það satt sem ég heyri, að þú stelir frá mér? Viltu gjöra svo vel að koma reglu á bókhaldið og síðan geturðu farið."

3 Maðurinn hugsaði með sjálfum sér: „Nú, jæja, þá er búið að segja mér upp! Hvað á ég nú að gera? Ég hef ekki þrek til að grafa skurði og er of stoltur til að betla. 4 Nú veit ég hvað ég geri til þess að eignast marga vini, sem geta hjálpað mér þegar ég fer héðan."

5,6 Síðan bauð hann hverjum skuldunaut fyrir sig að koma og ræða um skuldina. Hann spurði þann fyrsta: „Hve mikið skuldar þú atvinnurekanda mínum?" „3.500 lítra af ólífuolíu," svaraði maðurinn. „Já, rétt er það" sagði framkvæmdastjórinn, „hérna er samningurinn sem þú undirritaðir. En nú skaltu rífa hann og skrifa annan, fyrir helmingnum af þessu magni."

7 „Hve mikið skuldar þú?" spurði hann næsta mann. „1.000 tunnur af hveiti," var svarið.

„Hérna," sagði hinn, „hirtu samninginn þinn og gerðu nýjan, upp á 800 tunnur."

8 Ríki maðurinn var tilneyddur að dást að þorpara þessum fyrir slægð hans.

Satt er það, að guðleysingjarnir eru kænni í viðskiptum sínum við heiminn en hinir trúuðu. 9 En ég segi ykkur: Notið eigur ykkar til þess að afla ykkur vina, svo að þeir fagni ykkur í eilífðinni, þegar þið verðið að skiljast við þær.

10 Sá sem er trúr í litlu, verður einnig trúr í stóru. Sá sem svindlar í því sem lítið er, mun einnig fara óheiðarlega með það sem meira er.

11 Ef ekki er hægt að treysta ykkur í hinu veraldlega, hver mun þá trúa ykkur fyrir hinum miklu auðæfum himnanna? 12 Ef þið farið illa með fjármuni annarra, hvernig er þá hægt að treysta ykkur fyrir eigin fjármunum?

13 Enginn getur þjónað tveim húsbændum – ekki þið heldur. Þið munuð hata annan en aðhyllast hinn – láta ykkur annt um annan en fyrirlíta hinn. Þið getið ekki gert hvort tveggja í senn, þjónað Guði og peningunum."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.