Pular para o conteúdo
Publicidade

Lucas 16

19 Jesús hélt áfram og sagði: Maður nokkur, ríkur, klæddist dýrindisfatnaði og lifði dag hvern í gleðskap og allsnægtum. 20 Dag einn var sjúkur betlari, Lasarus nafni, lagður við dyr hans. 21 Þar hann og vonaðist eftir leifum af borði ríka mannsins, en hundar komu og sleiktu sár hans. 22 lokum betlarinn og englar báru hann til Abrahams. Ríki maðurinn einnig, var grafinn 23 og fór til heljar. En er hann kvaldist þar, hann Lasarus álengdar hjá Abraham.

24 Faðir Abraham," kallaði hann, miskunnaðu mér! Sendu Lasarus hingað til þess dýfa fingri í vatn og kæla tungu mína, því ég kvelst í þessum loga."

25 En Abraham svaraði: Sonur, mundu meðan þú lifðir hafðir þú allt sem þú þurftir, en Lasarus var allslaus. Hér huggast hann, en þú kvelst. 26 Auk þess er mikið djúp okkar á milli og þeir sem vilja komast héðan yfir til þín, geta það ekki og enginn kemst frá ykkur yfir til okkar."

27 Þá sagði ríki maðurinn: Ó, faðir Abraham, gerðu þá annað, sendu hann heim til föður míns 28 því ég á fimm bræður og varaðu þá við þessum kvalastað, svo þeir lendi ekki hér líka þegar þeir deyja."

29 Þá svaraði Abraham: Þeir hafa Biblíuna, hlýði þeir henni."

30 Nei, faðir Abraham," svaraði ríki maðurinn. En ef einhver kæmi til þeirra frá hinum dauðu, þá myndu þeir áreiðanlega snúa sér frá syndum sínum."

31 En Abraham svaraði: Ef þeir hlýða ekki orðum Biblíunnar Móse og spámönnunum munu þeir ekki heldur láta sannfærast þótt einhver rísi upp frá dauðum." "

Veja também