9 Síðan sagði hann þeim, sem stærðu sig af verkum sínum og fyrirlitu aðra, eftirfarandi sögu:
10 „Tveir men fóru upp í musterið til að biðjast fyrir. Annar var farísei, en hinn var skattheimtumaður. 11 Faríseinn bað þannig: „Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og syndararnir, til dæmis eins og þessi skattheimtumaður! Ég stel aldrei, ég drýgi ekki hór, 12 ég fasta tvisvar í viku og gef tíund af öllu sem ég vinn mér inn."
13 Óprúttni skattheimtumaðurinn stóð langt frá og þorði ekki einu sinni að horfa upp til himins meðan hann bað, heldur barði sér hryggur á brjóst og sagði: „Guð, vertu mér syndugum líknsamur." 14 Ég segi ykkur: Þessi syndari fékk fyrirgefningu, en ekki faríseinn! Hinir hrokafullu verða niðurlægðir, en auðmjúkum veitt náð."